A BMX rider in a pink hoodie and black helmet performs a mid-air backflip over a ramp, with a modern glass building and a crowd watching in the background.

Barnamenning í Hörpu

Í stefnu Hörpu er lögð rík áhersla á barnamenningu og fjölskylduvæna viðburði og er það mikilvægur þáttur í að sinna sem best menningarlegu og samfélagslegu hlutverki hússins.

Fjölskyldudagskrá Hörpu hefur fest sig í sessi sem eftirsóknarverður vettvangur fyrir börn og fjölskyldur og býður Harpa að jafnaði upp á tvo fjölskylduviðburði í mánuði. Mikið er lagt upp úr vandaðri, gjaldfrjálsri fjölskyldudagskrá sem er aðgengileg öllum óháð fjárhag, uppruna, tungumáli eða búsetu.

Dagskráin á árinu

Harpa bauð upp á vandaða fjölskyldudagskrá með fjölskrúðugum tónlistar- og dansviðburðum, smiðjum og sköpun af ólíkum toga. Má þar nefna hljóðbað og krílabarrokk, hipphopp dansveislu og dúlludiskó, söngstund með Bambaló og tónleika með Los Bomboneros. Maxímús músíkús og vinir buðu upp á fjöltyngdar skoðunarferðir um króka og kima Hörpu og í desember fylltu hundruð leikskólabarna Hörpu af söng á jólaböllum sem haldin eru fyrir börn í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu.

Alls fóru fram 36 viðburðir í fjölskyldudagskránni á árinu og töldu gestir yfir 5.000 talsins. Því til viðbótar voru fjölmargir barnaviðburðir í boði í hátíðardagskrá Hörpu á Menningarnótt.

Fjölþjóðleg tónlist er í sérstökum brennidepli veturinn 2025 – 2026 með viðburðaröðinni Heimstónlist í Hörpu. Tveir viðburðir fóru fram í röðinni haustið 2025: Tónlist frá Vestur-Afríku og tónlist frá Mið- og Suður-Ameríku. Viðburðaröðin er styrkt er af Barnamenningarsjóði en henni mun ljúka með glæsilegri uppskeruveislu í júní í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík.

Hljóðbað á Myrkum músíkdögum í janúar 2025

Hljóð­himnar barna­rými

Hljóðhimnar er tónlistartengt upplifunar- og uppgötvunarrými fyrir börn á jarðhæð hússins sem er afar vinsælt. Í Hljóðhimnum er hægt að setja sig í stellingar hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hjúfra sig upp að vögguvísum og sönglögum Íslensku Óperunnar, kíkja inn í músaholur eins og Maxímús Músíkús, sigla um tónlistarinnar höf með Tónstýri Stórsveitar Reykjavíkur og margt fleira. Hljóðhimnar eru opnir á sama tíma og húsið og aðgangur frír.

a hallway with a lot of colorful objects on the floor and ceiling .