Mikilvægisgreining og hagaðilar
Harpa gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu með rekstri á tónlistar- og ráðstefnuhúsi þar sem tilgangurinn er að skapa menningarleg, efnahagsleg og samfélagsleg verðmæti fyrir eigendur sína, landsmenn alla.
Harpa vill vera til fyrirmyndar á sviði sjálfbærni og leggur ríka áherslu á vönduð samskipti og virkt samstarf við helstu hagaðila til að ná settum markmiðum.
Hagaðilar Hörpu eru þeir aðilar sem hafa beina eða óbeina hagsmuni af starfsemi hennar og geta haft áhrif á hana eða orðið fyrir áhrifum af henni. Harpa vinnur markvisst með hagsmunaaðilagreiningu sem byggir á alþjóðlegum viðmiðum um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Í greiningunni er lögð áhersla á að skilgreina helstu snertifleti og sameiginlega hagsmuni, með það að markmiði að styðja við upplýsta ákvarðanatöku og markvissar umbætur í starfseminni.
Sjálfbærnistefna Hörpu til 2030 og tengd mikilvægisgreining mynda grunn að þessari vinnu. Greiningin byggir á samantekt og greiningu upplýsinga frá fjölbreyttum heimildum, þar á meðal reglubundnum könnunum meðal almennings, gesta, rekstraraðila, stjórnenda og starfsfólks. Niðurstöður þessara gagna eru nýttar til að meta vægi helstu sjálfbærnimála, skerpa áherslur og tryggja að sjálfbærni sé samþætt öllum meginstoðum starfseminnar.
Markmiðið með þessari nálgun er að flétta sjálfbærni kerfisbundið inn í rekstur og stjórnun Hörpu, styðja við langtímaárangur og viðhalda traustri ímynd og orðspori Hörpu sem mikilvægrar eignar fyrir íslenskt samfélag.
Hagaðilar skiptast í innri og ytri hagaðila:
Innri hagaðilar: Eigendur (íslenska ríkið og Reykjavíkurborg) stjórn og starfsfólk Hörpu.
Ytri hagaðilar: Aðrir aðilar sem hafa hagsmuni af starfsemi Hörpu, bæði innanlands og erlendis.
Hagsmunir Hörpu endurspeglast í lykil sjálfbærniþáttum og falla undir eftirfarandi málaflokka samfélagsábyrgðar:
Helstu hagaðilar tengdir félaginu og starfsemi þess
Beinir hagaðilar
Eigendur, stjórn, starfsfólk, innlendir og alþjóðlegir viðburðahaldarar, gestir og birgjar.
Aðrir hagaðilar
Stjórnsýslan, atvinnulífið, hagsmunasamtök, eftirlitsaðilar, fjölmiðlar.

Hagaðilar eftir sjálfbærnimálaflokkum
Innri hagaðilar
Aðilar: Eigendur (íslenska ríkið og Reykjavíkurborg) og starfsfólk Hörpu.
Málaflokkur: Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif.
Innlendir og alþjóðlegir viðburðahaldarar
Aðilar: Tónlistarfólk, aðrir listamenn, tónleika- og ráðstefnuhaldarar, einstaklingar og önnur fyrirtæki sem nýta aðstöðuna.
Málaflokkur: Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif.
Birgjar og þjónustuaðilar
Aðilar: Fyrirtæki sem útvega vörur og þjónustu fyrir rekstur Hörpu, t.d. veitingar, hljóð- og ljósabúnað, aðra sérfræðiþjónustu, viðhald, þrif, öryggisþjónustu og rekstrarvörur.
Málaflokkur: Efnahagsleg og umhverfisleg áhrif.
Rekstraraðilar í Hörpu
Aðilar: KH veitingar, Rammagerðin, Green Parking og The Volcano Express.
Málaflokkur: Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif.
Menningartengdir aðilar með aðsetur í Hörpu
Aðilar: Sinfóníuhljómsveit Íslands, Stórsveit Reykjavíkur, Reykjavik Recording Orchestra.
Málaflokkur: Samfélagsleg áhrif.
Stjórnsýslan
Aðilar: Opinberir aðilar, eftirlitsaðilar, ráðuneyti, borgar- og sveitarstjórnir.
Málaflokkur: Efnahagsleg, samfélagsleg og umhverfisáhrif.
Atvinnulífið
Aðilar: Fyrirtæki, samstarfsaðilar, þjónustuaðilar.
Málaflokkur: Efnahagsleg áhrif.
Hagsmunasamtök
Aðilar: Stéttarfélög, FíH, FÍT, STEF, SA, SAF, o.fl.
Málaflokkur: Efnahagsleg og samfélagsleg áhrif.
Fjölmiðlar
Aðilar: Innlendir og erlendir fjölmiðlar.
Málaflokkur: Samfélagsleg áhrif.
Menningarstofnanir og listafólk
Aðilar: Sinfóníuhljómsveitir, óperustarfsemi, tónlistarfólk, tónlistarhátíðir, listrænir framleiðeiðendur.
Málaflokkur: Samfélagsleg áhrif.
Fræðasamfélagið
Aðilar: Háskólar, rannsóknarsetur, fræðasamfélagið, nýsköpunargeirinn.
Málaflokkur: Samfélagsleg og efnahagsleg áhrif.
Ferðaþjónusta
Aðilar: Flugfélög, hótel, ráðstefnuskipuleggjendur, afþreyingarfyrirtæki, ferðaskipuleggjendur, samgöngufyrirtæki, leiðsögumenn, veitingastaðir.
Málaflokkur: Efnahagsleg áhrif.
Neytendur og samfélagið almennt
Aðilar: Gestir og almenningur sem notar þjónustu Hörpu.
Málaflokkur: Samfélagsleg áhrif.
Umhverfisverndarsamtök
Aðilar: Grænir hagsmunaaðilar, umhverfisverndarsamtök.
Málaflokkur: Umhverfisáhrif.