Eigin dagskrárgerð Hörpu 2025

Harpa hefur ríku menningarlegu og samfélagslegu hlutverki að gegna og starfar eftir dagskrárstefnu þar sem markmiðið er að auka fjölbreytni í viðburðahaldi í húsinu. Barnamenning, grasrót, samstarf við fjölbreyttan hóp stofnana, hátíða og listamanna og hágæða alþjóðlegir tónlistarviðburðir eru þar í brennidepli.

Upprásin

Tilraunagleði og nýsköpun réð áfram ríkjum innan Upprásarinnar, tónleikaraðar sem hleypt var af stokkunum í Hörpu haustið 2022. Upprásin er helguð grasrótinni í íslenskri tónlist, þvert á aldur, uppruna og tónlistarstefnur. 27 hljómsveitir eða sólistar koma fram innan seríunnar á hverju ári og hefur hún reynst afar mikilvægur suðupottur fyrir tónlistarfólkið, áheyreyndur og alla samstarfsaðila. Upprásin er samstarfsverkefni Hörpu, Reykjavíkur tónlistarborgar og Rásar 2 en nýtur einnig styrks frá Landsbankanum.

A female singer screams into a microphone on stage, next to a bassist, under pink lighting.

Geðbrigði á tónleikum Upprásarinnar í desember 2025

Revolta og Geneva Camerata

Harpa gekkst fyrir tveimur alþjóðlegum viðburðum á árinu. Sá fyrri var í júní þegar kammersveitin Geneva Camerata bauð upp á einstaklega áhrifamikla sviðsetningu á fimmtu sinfóníu Dmitris Shostakovitsj í Eldborg. Verki rússneska tónskáldsins var þar teflt saman við krumpdans, kraftmikinn street dans sem þróaðist í Los Angeles um aldamótin síðustu. Hljóðfæraleikarar Geneva Camerata léku verkið eftir minni og tóku virkan þátt í sviðsetningunni ásamt fjórum krump-dönsurum. David Greilsammer stýrði flutningi en tónleikarnir voru liður í tónleikaferð kammersveitarinnar um Evrópu.

Flutningur sveitarinnar á Revolta hlaut standandi lófatak og dynjandi fagnaðarlæti, fjórar stjörnur hjá Jónasi Sen á Vísi og fimm stjörnur hjá Magnúsi Lyngdal Magnússyni í Morgunblaðinu. Listafólkinu var hælt á hvert reipi fyrir afar hugmyndaríka og áhrifamikla nálgun á tónlist Shostakovitsj en fullyrða má að viðlíka flutningur á sinfónískri tónlist eigi sér fáar hliðstæður hér á landi.

Dancers and musicians play string instruments on a smoky stage under bright spotlights.

Revolta í Eldborg

Hin óviðjafnanlega Cécile

Í ágúst kom ein eftirsóttasta jazzsöngkona heims, Cécile McLorin Salvant, þrefaldur Grammy-verðlaunahafi, fram á lokatónleikum Jazzhátíðar í Reykjavíkur sem fram fóru í Eldborg. Viðburðurinn var samstarfsverkefni Hörpu og Jazzhátíðar en frumkvæði að tónleikunum átti dagskrárráð Hörpu. Með Cécile komu fram Sullivan Fortner á píanó, Yasushi Nakamura á bassa og Kyle Poole á trommur; efnisskráin var einstaklega fallega samsett með kunnuglegum jazzsmellum í bland við fáheyrðari lög og frumsamið efni Cécile sjálfrar. Heimsókn Cécile og hinna frábæru samstarfsmanna var glæsilegur lokapunktur á afar vel heppnaðri jazzhátíð sem fór fram í Hörpu.

Two smiling musicians perform on stage, a man at a keyboard and a woman in a polka-dot dress at a grand piano.

Cécile McLorin Salvant og Sullivan Fortner

Menningarnótt

Mörgþúsund manns lögðu leið sína í Hörpu á Menningarnótt og nutu litskrúðugrar og glæsilegrar dagskrár þar sem mörg hundruð listamenn lögðu sitt lóð á vogarskálarnar.

Viðburðir voru á fjórða tug og teygðu sig um alla Hörpu með skapandi smiðjum fyrir börn og fjölskyldur með ÞYKJÓ, Sóleyju Stefánsdóttur og Kordu Samfóníu, tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Stórsveit Reykjavíkur og Blúsfélagi Reykjavíkur og fjölbreyttri dagskrá með Reykjavík Bókmenntaborg, Myrkum músíkdögum, List án landamæra og Kammermúsíkklúbbnum svo örfáir viðburðir séu nefndir.

Á Hörputorgi ríkti sannkölluð karnivalstemning með hinum árlega lúðrasveitabardaga, glæsilegum áhættuatriðum BMX Brós og hinni vinsælu bátasmiðju Memmm. Dans Brynju Péturs sýndi magnað hipphopp atriði og Heidi Miikki steig veggjadans á Hörpuhjúp en að baki dagskránni á Hörputorgi stóðu Landsbankinn og Hafnartorg auk Hörpu.

Mugison ásamt kammerkórnum Huldi leiddi svo einstaklega fallegan fjöldasöng í alrými Hörpu undir lok dags. Gestir Hörpu tóku undir svo ómaði um allt húsið. Einstakt niðurlag á mögnuðum degi.

Young girls dancing energetically outdoors.

Hipphopp með Dans Brynju Péturs á Hörputorgi á Menningarnótt


Upptakturinn tónsköpunarverkefni

Uppskeruveisla Upptaktsins fór fram í apríl en þar litu fjórtán glænýjar tónsmíðar eftir börn og ungmenni dagsins ljós. Upptakturinn er tónsköpunarverkefni ætlað börnum og ungmennum í 5. – 10. bekk en þar fá börnin hvatningu til að semja tónlist og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með aðstoð tónsmíðanema við Listaháskóla Íslands og starfandi tónlistarfólks. Upptakturinn var fyrst sleginn árið 2012 og hefur þróast, vaxið og dafnað æ síðan en um 150 börn og ungmenni hafa hlotið Tónsköpunarverðlaun Upptaktsins. Upptakturinn verður sleginn á ný árið 2026 og kallað eftir lagahugmyndum

A group of adults and children stand on a stage, holding certificates and awards.

Þátttakendur í Upptaktinum 2025

Rising Stars

Harpa tók á árinu í fyrsta sinn þátt í tónlistarverkefninu Rising Stars á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónlistarhúsa, en sópransöngkonan fjölhæfa, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir er fyrst íslenskra listamanna til að koma fram undir þeim merkjum.

Rising Stars-verkefnið hefur í um þrjátíu ár gefið ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að kynna sig í tónlistarhúsum víðs vegar um álfuna og jafnfram veit ferskum straumum inn í tónlistarlíf og dagskrá viðkomandi tónlistarhúsa.

Álfheiður Erla kemur fram í mörgum af bestu tónleikahúsum Evrópu veturinn 2025 – 2026 ásamt píanóleikaranum Kunal Lahiry og heldur tónleika í Hörpu í maí 2026 þegar gestum Hörpu býðst að sækja ferna afar spennandi tónleika með ungum tónlistarstjörnum í Norðurljósum.

Event poster for ECHO Rising Stars featuring a man and a woman in a stylized photo, with concert details in Icelandic for May 10th.