Rekstraraðilar
Rekstraraðilar í Hörpu styðja við hlutverk hússins sem lifandi menningarhúss og áfangastaðar með heildstæða og fjölbreytta upplifun fyrir gesti.
Rammagerðin er í glæsilegu verslunarrými á jarðhæð hússins. Basalt Arkitektar sáu um hönnun rýmisins sem er staðsett í austurhlið jarðhæðarinnar. Markmiðið með opnun verslunarinnar er að skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði sem vilja koma á framfæri sinni hönnun í listrænu og lifandi rými.

Reykjavík Recording Orchestra (RRO) hefur aðsetur í Hörpu og samanstendur af hópi fremstu tónlistar- og fagfólks í hljóði. RRO sérhæfir sig í upptökum fyrir kvikmyndir, sjónvarp, leiki, fjölmiðla og tónlist úr ýmsum áttum. Harpa hentar því afar vel fyrir starfsemi RRO enda margverðlaunuð fyrir hljóðvist. RRO hefur á þessu ári einnig unnið að verkefnum fyrir Hans Zimmer fyrir Frozen Planet 2 á vegum BBC, David Attenborough, Apple TV, Netflix, Amazon, Decca og Deutsche Grammophon auk íslensku myndarinnar Svar við bréfi Helgu.

Sýningin the Volcano Express opnaði í mars 2025 og þar fá gestir að upplifa eldfjallaundrið Ísland úr þægilegu sæti í Hörpu. Með háþróaðri margvíddartækni, sem á sér engan samanburð á heimsvísu, upplifa gestir krafta náttúrunnar á nýjan og einstakan hátt. Opið alla daga og sýnt á 15 mínútna fresti.
