Árs- og sjálf­bærni­skýrsla Hörpu 2025

Hlutverk Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. (Harpa) er að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur, innlendar sem erlendar. Harpa og dótturfélög (samstæðan) annast eignarhald og rekstur tónlistar- og ráðstefnumiðstöðvarinnar Hörpu við Austurhöfn í Reykjavík, auk tengdrar starfsemi.

Sjálf­bærni er samtal

Það er áhugavert að skoða hvernig hughrif sumra orða breytast með tímanum og jafnvel getur sjálf merking þeirra breyst. Fyrir fáum árum var „sjálfbærni“ orð sem margir tengdu helst við skýrslu skrif og íþyngjandi kvaðir í atvinnulífinu. Í dag er sjálfbærni orðin hluti af daglegum veruleika fyrirtækja og stofnana. Sjálfbærni er orðin órjúfanlegur hluti af ábyrgu viðskiptamódeli og innan skamms verðum við vonandi komin á þann stað að við hættum að greina hana sem sérstakt viðfangsefni, hún verður bara hluti af því hvernig við vinnum og hver við erum. Þessu hefur opið samtal um gildi sjálfbærni skilað. Sem betur fer.

a large crowd of people are watching a concert in a large auditorium .

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, stjórnarformaður

Vett­vangur verð­mæta­sköp­unar

Árið 2025 einkenndist af fjölbreyttri starfsemi í Hörpu en jafnframt ýmsum áskorunum í rekstrarumhverfinu. Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur – innlendar jafnt sem erlendar – og skapa þannig menningarleg, samfélagsleg og efnahagsleg verðmæti fyrir eigendur sína sem eru landsmenn allir.

A smiling woman with blonde hair and glasses wears a blue patterned top against a blue background.

Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri

Lykiltölur

Rekstrarhagnaður

445 m.kr.

Tekjur af starfseminni

1,838 m.kr.

Heildarfjöldi viðburða

1.344

Ráðstefnutengdir viðburðir

471

Tónleikar og listviðburðir

846

Þar af barna- og fjölskylduviðburðir

193

Þar af viðburðir Sinfóníuhljómsveitar Íslands

114

Þarf af listviðburðir fyrir ferðamenn

162

Fjöldi heimsókna í Hörpu

1,6 milljón

Afgreiddir aðgöngumiðar

200 þúsund

Sjálfbærni

Kolefnisjöfnun ígíldi CO2

86

Endurvinnsluhlutfall

97%

Minnkuð óbein orkunotkun frá 2019

24%

Heitavatnsnotkun minnkað frá árinu 2019

52%

Mannauður

Launamunur kynja

0,7 % kk

Öryggi á vinnustað

0 slys skráð

Heildareinkunn Fyrirtæki ársins 2025 - af 5 mögulegum

4,15

Starfsandi Fyrirtæki ársins 2025

4,33

Viðhorf almennings til Hörpu

Jákvæðni í garð Hörpu

69%

Ánægja með heimsókn í Hörpu sl. 12 mánuði

88%