Umhverfið

Árlega eru haldnir yfir 1300 viðburðir í Hörpu og er gestafjöldinn sem sækir húsið heim 1,6 milljónir. Miðað við umfang starfseminnar og fjölda viðskiptavina getur Harpa haft veruleg áhrif til að auka sjálfbærni í viðburðahaldi á Íslandi og er staðráðin í að vera leiðandi á því sviði.

Harpa leggur áherslu á að vera öðrum til fyrirmyndar um ábyrga viðskiptahætti sem leggja áherslu á efnahagslífið, samfélagið og umhverfið. Umhverfis- og loftslagsmál eru ofarlega á verkefnalista Hörpu og tryggt er að ávallt sé unnið taktfast að markmiðum. Fylgst er með þeim umhverfisáhrifum sem hljótast af daglegri starfsemi Hörpu og reynt er að lágmarka neikvæðu áhrifin. Ljóst er að rafmagn og hitaveita eru þeir þættir sem hafa helstu neikvæðu áhrifin og er leitast nýrra leiða til að lágmarka þau ár hvert.

Græn vegferð

Græna vegferðin hófst árið 2015 þegar Harpa varð aðili að Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar. Þá var lögð áhersla á að auka þekkingu starfsfólks á umhverfis- og loftlagsmálum. Í kjölfarið gaf Harpa út umhverfis- og loftslagsstefnu árið 2021.

Árið 2020 hóf Harpa þátttöku í verkefninu Græn skref, á vegum Umhverfisstofnunar, sem er fyrir ríkisstofnanir sem vilja efla umhverfisstarf sitt. Með þátttöku í verkefninu var komið inn öflugt innleiðingartæki til að efla umhverfisstarf í Hörpu með kerfisbundnum hætti og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfseminni. Harpa lauk öllum 5 Grænum skrefum Umhverfisstofnunar árið 2022 sem eru lykillinn að vistvænum opinberum rekstri.

Árið 2022 hlaut Harpa Svansvottun sem ráðstefnuhús. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggir á óháðri vottun og viðmiðum sem staðfesta strangar umhverfis- og gæðakröfur starfseminnar. Vottunin styrkir samkeppnishæfni hússins í alþjóðlegu samhengi.

Harpa hefur skilað inn Grænu bókhaldi til Umhverfisstofnunar síðan 2018. Þar koma m.a. fram upplýsingar um hvernig innkaupum á allri rekstrarvöru og þjónustu hefur verið háttað yfir árið. Harpa hefur með þessu getað sett sér mælanleg markmið um hagræðingar og dregið úr losun.

Harpa er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi um sjálfbærni með helstu tónleikahúsum Evrópu í gegnum samtökin ECHO (European Concert Hall Organisation). Í ECHO hópnum eru reglulega fjarfundir þar sem tónleikahúsin deila reynslu sinni og framsókn í sjálfbærnismálum sem gerir þeim kleift að miðla þekkingu og lærdómi. ECHO vinnur einnig að því að hvetja til aukinnar vitundar um sjálfbærni í umhverfismálum, bæði meðal hagsmunaaðila og meðlima, og hefur áhrif á samfélagið í heild með samskiptaleiðum sínum.

Umhverfisráð Hörpu

Stýrihópur um sjálfbærni, umhverfisráð, hefur starfað í rúm fjögur ár og unnið ötullega að því að gera umbætur hvað varðar sjálfbærni, setja markmið og hrinda af stað aðgerðaáætlun. Reglulegir fundir eru hjá umhverfisráði þar sem árangur er metinn, hvað má betur fara og forgangsröðun og markmið eru yfirfarin svo eitthvað sé nefnt. Áhersla er lögð á að fræða starfsfólk með reglulegum kynningum á starfsmannafundum og gott samstarf er við íbúa og rekstraraðila í húsinu um fræðslu og hvatningu í tengslum við sjálfbærni. Auk þess sér umhverfisráðið, í samráði við markaðsstjóra félagsins, um að upplýsa bæði starfsfólk og gesti hússins um þá áfanga sem náðst hafa.

Loftlagseftirlit

Umhverfisráð hefur yfirumsjón með og stýringu loftslagstengdrar áhættu hjá Hörpu. Loftslagsþættir og önnur mál tengd loftslagi eru tekin á dagskrá ráðsins á mánaðarlegum fundum, þar sem fylgst er með áætlun um loftslagsáhættur, staðan metin og mótvægisaðgerðir settar fram ef þess þarf. Einnig eru þar sem er metið, fylgst með og áætlað loftslagsáhættu og mótvægisaðgerðir ásamt þeim tækifærum sem geta falist í því.

Umhverfisstjórnunarkerfi

Harpa gerði samning við Klappir Grænar Lausnir hf. árið 2016 um notkun á umhverfisstjórnunarkerfi þeirra til að halda utan öll gögn er varða umhverfi og koma þau hér fram í Sjálfbærniskýrslu Hörpu. Önnur gögn í skýrslunni koma úr kerfum félagsins.

Gögnin eru sett fram með bestu vitund, rýnd og yfirfarin af starfsfólki og stjórnendum Hörpu, en eru ekki staðfest eða yfirfarin af þriðja aðila. Fjárhagsupplýsingar hafa hins vegar verið endurskoðaðar og staðfestar af endurskoðendum samstæðunnar.

Gögnin eru fyrir almanaksárið 2024 og uppfyllir skýrslan kröfur laga nr. 3/2006 um ársreikninga og tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/95/ESB um ófjárhagslega upplýsingagjöf.

Sjálfbærniskýrsla Hörpu er nú gefin út samhliða ársuppgjöri í þriðja sinn og hefur skýrslan vaxið að umfangi á hverju ári. Harpa hefur frá upphafi stuðst við UFS leiðbeiningar Nasdaq, ESG Reporting Guide 2.0, sem gefin var út í febrúar 2020. Þar er fjallað um lykilstærðir og upplýsingar um umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti.

Harpa er stolt af sinni sjálfbærnivegferð og sjást áherslurnar á umhverfis- og loftslagsmálum í sífellt meiri mæli til viðskiptavina, gesta og starfsfólks.

Vottanir

Harpa er staðráðin í að axla ábyrgð og stuðla að betri framtíð eins og frekast er kostur. Umhverfisvernd er innbyggð í starfsemina og er sjálfbærni leiðandi þáttur í öllu starfi. Harpa hefur um áraraðir unnið að því að draga úr umhverfisáhrifum og hefur frá árinu 2022 tekið sjálfbærnimál enn fastari tökum en það ár hlaut Harpa Svansvottun sem ráðstefnuhús.

Interior of Harpa Concert Hall, a man holds a child aloft while another child stands nearby, against a honeycomb glass facade. Text and a Nordic Swan Ecolabel logo indicate its environmental certification.

Harpa - Svansvottað ráðstefnuhús

Svansvottun er opinbert norrænt umhverfismerki Norðurlandanna og nær til Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Umhverfismerkið var stofnað árið 1989 af Norrænu ráðherranefndinni og er Svansvottun umhverfismerki af Týpu 1 samkvæmt ISO 14024 staðlinum. Svanurinn er jafnframt einn af stofnmeðlimum Global Ecolabelling Network.

Svansmerkt ráðstefnuaðstaða uppfyllir strangar og skilgreindar umhverfiskröfur sem styðja við markmið UFS-mælikvarða Nasdaq, einkum á sviði umhverfis (E) og stjórnarhátta (G).

Kröfurnar ná meðal annars til eftirfarandi þátta:

  • Skilvirkrar umhverfisstjórnunar með skýrri ábyrgð og reglulegri eftirfylgni.
  • Áherslu á sjálfbær matvæli, þar á meðal lægra kolefnisspor og aukið hlutfall lífrænt vottaðs matar og drykkjar.
  • Lágmörkun orkunotkunar og innleiðingar orkusparandi aðgerða.
  • Minnkunar á magni blandaðs úrgangs og aðgengilegrar flokkunar.
  • Lágmörkun vatnsnotkunar og innleiðingar vatnssparandi lausna.
  • Innkaupa á umhverfisvottuðum vörum og markvissrar stjórnar á efnanotkun.
  • Mælinga á matarsóun og aðgerða til að draga úr henni.
  • Takmörkunar á notkun einnota vara og lágmörkun umbúðanotkuna.

Með því að starfa samkvæmt kröfum Svansvottunar er tryggt að rekstur og þjónusta Hörpu samræmist viðurkenndum alþjóðlegum viðmiðum um umhverfisábyrgð og stöðugar umbætur.

Two women in black uniforms clean a modern building, one mopping and the other wiping a table.

Umhverfisvæn ræsting

Harpa leggur áherslu á að velja birgja og þjónustuaðila sem uppfylla skýr og mælanleg umhverfissjónarmið. Þjónustufyrirtækið Dagar annast ræstingu í Hörpu. Ræstingaþjónusta Daga er Svansvottuð og umhverfisstjórnunarkerfi fyrirtækisins er vottað samkvæmt ISO 14001 staðlinum. Dagar nota eingöngu umhverfisvottuð hreinsiefni í daglegri ræstingu. Þessar vottanir styðja við markvissa vinnu Daga að metnaðarfullum sjálfbærnimarkmiðum og staðfesta skuldbindingu fyrirtækisins til stöðugra umbóta í umhverfismálum.

Umhverf­is­upp­gjör 2025

Kolefnisjöfnun 2025

Harpa er upplýst um mikilvægi þess að sporna gegn loftlagsbreytingum með því að draga fyrst og fremst úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL). Harpa hefur kolefnisjafnað losun í starfseminni á GHL fyrir árin 2020-2024 í þremur verkefnum: Uppbygging á umhverfisvænni eldunaraðstöðu í Malaví, uppbygging á jarðgerðastöð í Delhi og National Solar Power Development Programme.
Fyrir árið 2025 hefur Harpa kolefnisjafnað losun á starfseminni á GHL í gegnum verkefnið Improved Cook Stove Project 2 í Nkhata Bay í Malaví.

Harpa kaupir vottaðarlosunarminnkunareiningar (CER) í gegnum Sameinuðu þjóðirnar, sem eru með umsjón meðverkefnunum. CER einingarnar eru aðeins gefnar út fyrir áreiðanleg loftlagsvæn verkefni sem kallast Clean Development Mechanism (CDM). Öll þessi verkefni eru í þróunarlöndunum og stuðla að sjálfbærri þróun. Til þess að verkefni teljist til CDM verkefnis þá þarf það að standast strangar kröfur og margir hagsmunaaðilar sem koma að því.
https://offset.climateneutralnow.org/ (https://offset.climateneutralnow.org/)

Á árunum 2020-2023 var kolefnisjafnað fyrir Umfang 3 en tekin var ákvörðun um að kolefnisjafna einnig Umfang 1 og 2 fyrir árið 2024, til viðbótar við Umfang 3.

Kolefnisjöfnunarverkefni

Harpa hefur kolefnisjafnað fyrir umfang 1,2,3 fyrir árið 2025 hjá Sameinuðu þjóðunum. Harpa þykir mikilvægt að styðja verkefni sem hafa raunveruleg jákvæð áhrif á loftslag, samfélag og heilsu fólks. Eitt slíkt verkefni er Improved Cook Stove Project 2 í Nkhata Bay í Malaví, þar sem orkuskilvirkum eldavélum er dreift til heimila í stað hefðbundins opins elds. Verkefnið nær til um 22.000 heimila og um 200.000 einstaklinga og miðar að því að draga úr eldiviðarnotkun, skógareyðingu og losun gróðurhúsalofttegunda. Jafnframt minnkar reykmengun við eldun, sem getur bætt heilsu og dregið úr öndunarfærasjúkdómum og brunaslysum.

Verkefnið tengist einnig alþjóðlegu starfi Clean Cooking Alliance, sem vinnur með samstarfsaðilum um allan heim að því að auka aðgengi að hreinni eldun. Markmiðið er að bæta heilsu, vernda umhverfið og styrkja lífsskilyrði fólks með því að gera hreinni og öruggari eldunaraðferðir aðgengilegar.

Slík verkefni styðja beint við nokkur af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, meðal annars markmið um loftslagsaðgerðir, heilsu og vellíðan, sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og jafnrétti kynjanna. Þau markmið falla vel að þeirri stefnu Hörpu að starfa í samræmi við heimsmarkmiðin og leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar. Frekari upplýsingar um verkefnið

A smiling woman squats next to a traditional outdoor clay stove with pots under a simple shelter.

Vatnsnotkun

Á undanförnum árum hefur Harpa lagt sérstaka áherslu á orkusparnað og sjálfbærni með fjölmörgum aðgerðum sem draga úr orkunotkun og umhverfisáhrifum. Salir eru aðeins kynntir þegar þeir eru í notkun sem tryggir að orka fer ekki til spillis þegar ekki er þörf á henni. Auk þess hefur Harpa í auknum mæli lagt áherslu á að auka vitund starfsfólks um sjálfbærni og hagnýtingu auðlinda landsins. Það felst meðal annars í því að nýta vatnsauðlindina á ábyrgan hátt og fara sparlega með allar auðlindir á athafnasvæðinu. Kynding fer sparlega fram og er aðeins notuð þegar þörf er á, en þar sem húsið er að stórum hluta úr gleri nýtur það náttúrulegs sólarljóss til að kynda á sumrin.

Einnig hefur verið unnið markvisst að því að skipta út ljósum fyrir LED-búnað, sem hefur haft mikil áhrif á orkuforða og dregið úr orkunotkun. Þá er einnig fylgst með nýjustu tækninýjungum sem hjálpa til við að nýta orku á sem hagkvæmastan hátt. Með þessum aðgerðum hefur Harpa náð árangri í því að minnka bæði kostnað og kolefnisspor og heldur áfram að þróa nýjar lausnir sem stuðla að betri orkunýtingu.

Orkunotkun

Harpa hefur náð framúrskarandi árangri í því að spara rafmagn og notkun á heitu vatni á undanförnum árum. Þessi góði árangur sýnir skýrt þann metnað sem ríkir hjá félaginu og ekki hvað síst þá samfélagslegu ábyrgð sem Harpa sýnir í umhverfismálum.

Frá árinu 2018 hefur rafmagnsnotkun dregist saman um 23,6 % m.v. árið 2025 á meðan notkun á heitu vatni hefur dregist saman um 60,58 % frá árinu 2019.

Heildarorkunotkun Hörpu hefur dregist saman um 51,7% á tímabilinu 2019 til 2025. Þessi samdráttur endurspeglar markvissar aðgerðir í orkunýtingu og aukna áherslu á hagkvæmni og sjálfbærni í rekstri hússins.

Til að ná árangri hefur Harpa innleitt fjölþættar aðgerðir sem miða að bættri orkunýtingu, meðal annars með markvissri stýringu á tæknikerfum hússins. Sérstök áhersla hefur verið lögð á rekstur loftræstikerfa, en í húsinu eru 19 loftræstisamstæður sem eru orkufrekar. Með aukinni stjórn, betri samhæfingu við raunverulega notkun hússins og samþættingu við starfsemi þess hefur tekist að hámarka hagkvæmni og draga úr óþarfa orkunotkun.

Jafnframt hefur verið ráðist í víðtæka endurnýjun á lýsingu hússins með því að skipta hefðbundnum lömpum og perum út fyrir LED-lausnir, sem eru viðurkennd leið til orkusparnaðar. Hundruðum ljósgjafa hefur þegar verið skipt út og er nú stór hluti af húsnæðinu LED-væddur. Auk umhverfislegs ávinnings hefur þessi umbreyting bætt lýsingu hússins til muna og stuðlað að notalegu og vönduðu umhverfi fyrir gesti og starfsfólk.

Með markvissum aðgerðum til orkusparnaðar og minni sóunar dregur Harpa ekki aðeins úr kolefnisspori sínu, heldur næst jafnframt verulegur rekstrarlegur sparnaður sem skiptir miklu máli fyrir bæði daglegan rekstur og langtímastefnu hússins. Harpa hefur með þessu skapað sér stöðu sem fyrirmynd fyrir aðrar stofnanir og fyrirtæki sem vilja vinna markvisst að sjálfbærni og minnkun kolefnisfótspors.

Framlag Hörpu á sviði umhverfismála undirstrikar að tónlistar- og ráðstefnuhús getur verið meira en miðpunktur menningar og mannlífs – það getur jafnframt verið leiðandi afl í innleiðingu grænna lausna. Harpa sameinar á árangursríkan hátt listir og sjálfbærni og er stolt af því að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar framtíðar.

Pappírsnotkun

Starfsfólk hefur á undanförnum árum aukið vitund sína um mikilvægi umhverfisverndar og tekið virkan þátt í sjálfbærnivegferð Hörpu.

Einn þáttur í bættri umhverfisvitund er að minnka pappírssóun og hefur prentun á A4 blaðsíðum hjá starfsfólki dregist saman um 76,71% frá árinu 2019.

Fleiri valkostir hafa einnig verið innleiddir til að koma í stað útprentunar, s.s. aukin rafræn miðlun og gagnageymsla. Harpa nýtir tækni sem veitir aðgang að upplýsingum án þess að prenta út og dregur þannig úr mengun og sparar auðlindir.

Pappírsnotkun lækkaði aftur á milli ára, eða um 39,7% milli 2024 og 2025.

Flokkun og endurvinnsla

Harpa flokkaði í hátt í 19 flokka á árinu í góðu samstarfi við Terra umhverfisþjónustu. Gestum og starfsfólki hússins býðst að flokka frá fjórum og upp í sex flokka tunnur allt eftir rýminu sem það er í. Ráðstefnugestir fá ávallt sex flokka tunnur þar sem yfirleitt er boðið upp á veitingar á viðburðinum.

Sjöttu flokkunartunnunni var bætt við á árinu 2024 en um er að ræða hólf fyrir afgangsvökva og eru gestir beðnir um að hella úr glösunum í hólfið þannig að endurunna pappírsglasið skemmi ekki pappírsflokkunina með bleytu. Þessi viðbót hefur reynst vel og gestir hafa verið mjög hrifnir af því að getað flokkað betur. Með aukinni vitund umað flokka, hjá fólki sem starfar eða sækir húsið, var aukin eftirspurn eftir meira rými fyrir flokkunarkör og var bætt við þá aðstöðu í húsinu.

Flokkunarhlutfall úrgangs árið 2025 var 53,6%, samanborið við 61% árið 2024. Lækkunin skýrist að hluta til af auknu magni blandaðs úrgangs á árinu, sem hafði áhrif á heildarhlutfall flokkunar og endurvinnslu.

Í september var ráðist í markvissa tiltekt í geymslum og öðrum rýmum þar sem með tímanum höfðu safnast upp ýmis húsgögn og munir sem ekki voru lengur í notkun. Lagt var upp með að lengja líftíma nýtanlegra muna með endurnýtingu og var hluti þeirra gefinn áfram til nýrra notenda. Það sem ekki fann nýja eigendur var afhent Terra til frekari meðhöndlunar. Sá úrgangur var skráður sem blandaður úrgangur, en Terra sá um að flokka efnið áfram í viðeigandi úrgangsflokka til endurvinnslu eftir því sem kostur var.

Verkefnið var liður í því að bæta yfirsýn yfir eigur, stuðla að ábyrgri meðferð úrgangs og auka endurnýtingu þar sem mögulegt er.

Sumarið 2024 var 21 handblásari settur upp á salernum fyrir gesti og var það stórt skref í að minnka blandað sorp. Handblásarar eru umhverfisvænn, hagkvæmur og þægilegur kostur sem dregur úr pappírsnotkun og minnkar þannig kolefnisfótspor, stuðlar að minna skógarhöggi og minni ruslmyndun. Handpappírsnotkun minnkaði um20% milli áranna 2024 og 2025 sem er árangur sem Harpa er stolt af.

Hringrásarhagkerfið

Árið 2023 tók Harpa mikilvægt skref í styrkingu hringrásarhagkerfisins með því að gera kröfu á seljendur búnaðar innan örútboðs að taka upp í eldri búnað frá Hörpu til endurnýtingar eða umhverfisvænnar endurvinnslu.

Markmiðið með hringrásarhagkerfinu er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Harpa leggur áherslu á að hafa auka ábyrgðartíma á tækjum til að ýta á framleiðendur og seljendur að gera vöruna endingarbetri.

Vilji Hörpu er að koma eldri lömpum eða lampaíhlutum í endurnýtingu eða endurvinnslu.Á árinu 2023 hófust umfangsmiklar endurbætur á lýsingu í bílakjallara Hörpu. Tekin var ákvörðun um að nýta eldri ljósabúnað og tengingar áfram og breyta núverandi ljósum yfir í LED. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lampar.is (áður Flúrlampar ehf.) sem framleiddi nýjan búnað inn í lampana. Með þessum hætti var allt nýtt áfram sem hægt var en á sama tíma verður lýsingin LED sem stuðlar að orkusparnaði. Upprunalegu lamparnir eru íslensk hönnun og framleiðsla og endurbæturnar voru líka íslensk framleiðsla en Harpa telur mikilvægt að styðja við íslenska framleiðslu eftir bestu getu. Neðri hæð bílakjallara Hörpu (K2) var LED-vædd að fullu á árinu 2024 og efri hæð kjallarans (K1) mun klárast á árinu 2026.

Harpa geymi óskilamuni á öruggum stað í allt að þrjá mánuði en að þeim loknum eru óskilamunir flokkaðir og gefnir í góðgerðamál. Flíkunum er skipt upp í tvennt sumt fertil góðagerðamála og annað er sett á vegginn í Mæðragarðinum í Lækjargötu.

Í maí 2025 tók Fasteignasvið Hörpu þátt í samfélagsverkefni sem miðar að því að styðja við heimilislausa og vekja athygli á málefnum þeirra. Í Mæðragarðinum í hjarta Reykjavíkur stendur veggurinn Öruggt skjól, sem helgaður er minningu og málefnum heimilislausra á Íslandi. Veggurinn er tákn um umhyggju og virðingu fyrir þeim sem hvorki eiga fast heimili né öruggt skjól.

Við vegginn hefur skapast vettvangur þar sem almenningur getur skilið eftir fatnað og annan búnað sem heimilislausir geta nýtt sér til að halda sér hlýjum. Í tengslum við verkefnið var veggurinn málaður upp á nýtt, pallur smíðaður við hann og svæðið í kring endurbætt.

Reykjavíkurborg lagði til hellur í framkvæmdina og Farver gaf málningu til verksins. Að auki afhenti Harpa óskilamuni sem ekki hafði tekist að finna eigendur að. Munirnir voru hengdir upp við vegginn þar sem þeir geta nú nýst þeim sem á þurfa að halda.

Með þessum endurbótum hefur veggurinn í Mæðragarði orðið enn skýrara tákn um samstöðu og samfélagslega ábyrgð, auk þess að minna á mikilvægi þess að hlúa að þeim sem standa höllum fæti.

Split image of a white slatted shed with a wooden deck under construction, showing two people installing planks and graffiti on the wall.

Á árinu var ráðist í markvissa tiltekt í geymslum og öðrum rýmum þar sem hafði safnast upp ýmis húsgögn og munir sem ekki voru lengur í notkun. Markmiðið var að fara yfir eigur sem ekki nýttust lengur og finna þeim nýjan farveg í stað þess að þeim yrði fargað. Ákveðið var að auglýsa hlutina á samfélagsmiðlum og voru viðbrögð mjög góð og var vel sótt í hlutina. Það var ánægjulegt að sjá að margir munanna fengu nýtt hlutverk og framhaldslíf hjá nýjum eigendum í stað þess að enda sem úrgangur.

Verkefnið var þannig liður í að stuðla að betri nýtingu eigna og draga úr sóun með því að lengja líftíma þeirra hluta sem enn voru nýtanlegir. 

Innkaupastefna

Markmið innkaupastefnu Hörpu er að við kaup á vörum og þjónustu sé markvissum og skipulögðum vinnubrögðum beitt og farið að lögum og reglum um opinber innkaup. Gæta skal að vistvænum og sjálfbærum rekstri og stuðla að nýsköpun og nýta stafrænar innkaupaleiðir þegar því verður við komið. Innkaupastefna og tengdar verklagsreglur skulu stuðla að heilbrigðri samkeppni og koma í veg fyrir mismunun. Lögð er áhersla á að huga ávallt að vistvænum og sjálfbærum innkaupum þegar því er við komið og að ástunda heiðarleg viðskipti, þar sem jafnræði, gagnsæi og hagkvæmni eru höfð að leiðarljósi.