Orange hexagonal windows, one with a white circular tuning fork design, overlooking water.

Markaðs- og kynningarstarf Hörpu á árinu 2025 byggði á skýrri langtímasýn þar sem áhersla var lögð á sterka vörumerkjauppbyggingu, markvissa stafræna miðlun og jákvæða gestaupplifun.

Á árinu voru haldnir 1.344 viðburðir í húsinu og voru gestakomur alls 1,6 milljónir, sem jafngildir um fjórföldum íbúafjölda landsins. Þessi umfangsmikla starfsemi undirstrikar mikilvægi markaðs- og kynningarstarfsins í Hörpu.

Infographic: 1.6 million annual visits to Iceland, 4 times its population, shown on an Iceland map with smiley faces. Harpa logo.

Mikil jákvæðni í garð Hörpu

Harpa heldur áfram að njóta velvildar almennings samkvæmt viðhorfskönnun Maskínu sem framkvæmd var í september. Niðurstöðurnar sýna að Harpa heldur áfram að styrkja stöðu sína sem hluti af mikilvægum innviðum fyrir menningu, atvinnulíf og samfélag.

69% landsmanna jákvæð í garð Hörpu – aðeins 4,7% mælast neikvæð
Heildarniðurstöður sýna að 69% landsmanna hafa jákvætt viðhorf til Hörpu en aðeins 4,7% neikvætt. Jákvæðni er ríkjandi í öllum helstu hópum og tengist helst fagurfræði og hönnun hússins, menningarlegu gildi, samfélagsáhrifum og faglegum gæðum starfseminnar.

Því fleiri heimsóknir, því meiri ánægja
Harpa er fjölsótt menningarhús og fundarstaður með um 1,5 milljónir heimsóknir árlega. Samkvæmt könnuninni hafa 73% landsmanna komið í húsið á sl. 12 mánuðum. Af þeim eru 85,6% ánægð með síðustu heimsókn. Könnunin sýnir að því oftar sem fólk heimsækir Hörpu, því jákvæðara er það í garð hennar.

Jákvæðar umsagnir á alþjóðavísu

Harpa gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskri ferðaþjónustu og er einn stærsti ferðamannasegull höfuðborgarsvæðisins. Á árinu 2025 hlaut Harpa TripAdvisor Travellers’ Choice verðlaunin, sem staðfestir þá jákvæðu upplifun sem gestir Hörpu alls staðar að úr heiminum lýsa í umsögnum sínum. Harpa hefur verið á verðlaunalista TripAdvisor ár hvert frá 2015 og hefur sú viðurkenning styrkt alþjóðlega ímynd hússins enn frekar.

A modern building with a glass facade, featuring a Tripadvisor Traveller's Choice Awards 2025 logo.

Ljósmyndari: Mike Kelley

Lykiltölur

Heildarfjöldi viðburða

1.344

Fjöldi heimsókna í Hörpu

1,6 milljónir

Afgreiddir aðgöngumiðar

200.000

Listviðburðir fyrir ferðamenn

162

Samfélagsmiðlar og Hörpusveitin

Stafræn miðlun er ein af meginstoðum sýnileika og markaðsstarfs Hörpu og gegnir lykilhlutverki í að styðja bæði við ímynd hússins og sölu viðburða sem haldnir eru í Hörpu. Harpa heldur sjálf hlutfallslega fáa viðburði og starfar fyrst og fremst sem vettvangur fyrir fjölbreytta dagskrá annarra aðila. Því er markvisst unnið að því að nýta stafræna miðla til að styðja við markaðs- og sölustarf viðburðahaldara og tryggja að viðburðir í húsinu fái sem mestan sýnileika.

Samfélagsmiðlar eru nýttir til að miðla upplýsingum um fjölbreytta starfsemi hússins, viðburði, samstarfsaðila og ímyndarskapandi efni, með áherslu á stöðuga nærveru, skýra framsetningu og samræmda ásýnd yfir helstu miðla. Þar er bæði miðlað efni frá Hörpu sjálfri og deilt áfram efni frá viðburðahöldurum til að auka útbreiðslu og styðja við miðasölu. Þá er einnig miðlað áfram efni frá gestum sem merkja Hörpu á samfélagsmiðlum sínum, sem eykur sýnileika, styrkir upplifun gesta og undirstrikar Hörpu sem lifandi menningar- og viðburðahús.

Árangur stafrænnar miðlunar endurspeglast í umfangsmikilli dreifingu og virkni. Miðlun Hörpu á samfélagsmiðlum nær til stórs hóps notenda og skilar milljónum birtinga, ásamt góðu smellihlutfalli auglýsinga, sem bendir til skýrrar markhópaskilgreiningar og skilvirkrar miðlunar. Stafræn miðlun styður jafnframt með beinum hætti við miðasölu, sem er lykilforsenda fyrir árangur viðburðahaldara og rekstur hússins í heild.

Fréttabréf og vildarklúbburinn Hörpusveitin eru mikilvægur hluti af þessari stafrænu nálgun. Hörpusveitin telur um 40.000 meðlimi sem njóta forréttinda á borð við forsölu á miðum og sértilboð. Vikuleg fréttabréf eru nýtt til að kynna dagskrá, nýja viðburði sem fara í sölu og tilboð sem styðja við miðasölu. Þessi miðlun er lykiltæki í samskiptum við kjarnahóp gesta og styður markvisst við sölu á viðburðum, jafnt fyrir Hörpu sjálfa sem og viðburðahaldara sem nýta sali hússins.

Lykiltölur - samfélagsmiðlar

Fylgjendur Facebook

31.250

Fylgjendur - Instagram

18.414

Fjöldi birtinga

11,4 milljónir

Notendur - dreifni

298,000

Smellir

79.000

Smellihlutfall - meðaltal

0,7%

Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni

Á árinu var lögð áhersla á bæði samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni í markaðsskilaboðum Hörpu með það að markmiði að endurspegla hlutverk Hörpu sem aðgengilegs, inngildandi og ábyrgs menningar- og ráðstefnuhúss.

Samfélagsleg ábyrgð birtist meðal annars í markvissri miðlun um fjölskyldudagskrá Hörpu, sem bauð upp á aðgengilega viðburði fyrir fjölskyldur óháð uppruna, fjárhagsstöðu, tungumáli eða öðrum bakgrunni. Á árinu voru haldnir 36 viðburðir innan fjölskyldudagskrárinnar með yfir 5.000 þátttakendum.

Þá var lögð áhersla á miðlun um fjölbreytta menningarviðburði, þar á meðal heimstónlist frá Vestur-Afríku og Mið- og Suður-Ameríku, skoðunarferðir um Hörpu með Maxímús á nokkrum tungumálum, yfir 30 viðburði á Menningarnótt og fimm tónleika í tónleikaröðinni Velkomin heim fyrir ungt tónlistarfólk sem er að flytja heim eftir nám erlendis. Jafnframt var miðlað upplýsingum um kóra sem buðu gestum og gangandi ókeypis aðgang að tónleikum.

Sjálfbærni var einnig virkur þáttur í markaðsskilaboðum Hörpu. Þar var meðal annars lögð áhersla á að Harpa er Svansvottað ráðstefnuhús og starfar samkvæmt viðurkenndum kröfum um umhverfisstjórnun. Markaðsmiðlun tók til sjálfbærrar ræstingar, notkunar umhverfisvottaðra hreinsiefna, grænni veitinga, aðgerða til að draga úr matarsóun og aukinnar flokkunar úrgangs. Með þessari miðlun var leitast við að auka vitund gesta og viðburðahaldara um umhverfisábyrgð og hvetja til sjálfbærari hegðunar í tengslum við heimsóknir og viðburðahald í Hörpu.

Með samþættri nálgun í markaðsskilaboðum studdi Harpa árið 2025 við bæði samfélagsleg og umhverfisleg markmið sín og styrkti ímynd sína sem ábyrgur og sjálfbær vettvangur fyrir menningu, ráðstefnur og viðburði.

Interior of Harpa concert hall with hexagonal windows, where a man plays with two children. Text reads "Harpa is a Swan-certified conference house" with the Nordic Swan Ecolabel.

Ljósmyndari: Mike Kelley

Uppfærð sjónræn ásýnd

Áhersla á vörumerkjauppbyggingu birtist meðal annars í þróun og innleiðingu á skýrri sjónrænni ásýnd. Harpa tók í notkun nýja íslenska leturgerð, Harpa Sans, sem hönnuðurinn Gabríel Markan teiknaði sérstaklega fyrir húsið. Leturgerðin var hönnuð til að styðja við sterkt, nútímalegt og auðþekkjanlegt útlitseinkenni sem endurspeglar stöðu Hörpu sem menningarhúss á heimsmælikvarða. Með innleiðingu Harpa Sans styrkir Harpa ekki einungis eigin ásýnd heldur styður jafnframt við íslenska hönnun og skapandi starf.

Typography sample for Harpa Sans typeface, featuring a large black lowercase 'h' and text examples in 'Light, Regular, Medium, Bold' weights, including 'Mozart & Bruckner' and 'Karíus & Baktus'.

Harpa Sans, hönnuður Gabríel Markan

Jafnframt var ný grafík innleidd til notkunar í markaðsefni sem hluti af endurmörkun og sjónrænni uppfærslu Hörpu. Markmiðið var að styrkja ímynd og vörumerki Hörpu og efla tengsl þess við húsið sjálft. Innblástur grafíkarinnar er sóttur, annars vegar, í svalir Eldborgar og, hins vegar, í veggi Norðurljósa og Kaldalóns og skapar þannig skýra tengingu milli arkitektúrs hússins og sjónrænnar miðlunar.

A woman in a black dress stands next to a purple panel with text "Nína Margrét Portrait," event date, and a Harpa logo.

Nýr vefur – bætt notendaupplifun

Í mars 2025 leit nýr vefur Hörpu dagsins ljós. Megináhersla nýs vefs er að bæta notendaupplifun og auðvelda aðgengi að upplýsingum um viðamikla starfsemi Hörpu. Vefurinn harpa.is fær vel yfir eina milljón heimsókna á ári og gegnir lykilhlutverki í miðlun upplýsinga, bæði til almennra gesta og viðburðahaldara. Notendavænn og aðgengilegur vefur styður við stöðu Hörpu sem lykilinnviðar í ráðstefnu- og viðburðahaldi í Reykjavík.