Fram­kvæmda­stjórn

Vettvangur verðmætasköpunar

Skýrsla forstjóra á aðalfundi Hörpu ohf. um ársreikning og starfsemi 2025.

Árið 2025 einkenndist af fjölbreyttri starfsemi í Hörpu en jafnframt ýmsum áskorunum í rekstrarumhverfinu. Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur – innlendar jafnt sem erlendar – og skapa þannig menningarleg, samfélagsleg og efnahagsleg verðmæti fyrir eigendur sína sem eru landsmenn allir.

A smiling blonde woman in glasses and a blue patterned top against a dark blue background.

Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri

Heimssvið og heimavöllur

Harpa hefur á undanförnum árum skapað sér einstaka stöðu sem heimavöllur og heimssvið fyrir tónlist og sviðslistir af ýmsum toga. Á árinu 2025 fóru fram alls 1.344 viðburðir í Hörpu, þar af 846 listviðburðir, sem endurspegla breidd og fjölbreytni tónlistarinnar og annarra sviðslista sem húsið hýsir. Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt 115 tónleika og opnar æfingar á árinu og Stórsveit Reykjavíkur, sem einnig á fast aðsetur í Hörpu, blés til 9 tónleika og dansviðburðar. Fjölmargar reglubundnar tónleikaraðir og tónlistarhátíðir fóru fram í húsinu, þar á meðal Sígildir sunnudagar, Jazzklúbburinn Múlinn, Myrkir músíkdagar, Reykjavík Early Music Festival, Seigla, Jazzhátíð Reykjavíkur og Óperudagar.

Harpa gegnir einnig víðtæku samfélagslegu hlutverki sem vettvangur fjölbreytileika og aðgengilegrar menningar og upplifunar. Viðburðir á vegum Hörpu sniðnir fyrir börn og fjölskyldur voru til að mynda tæplega 40 talsins sem um 5.000 manns sóttu, auk Menningarnætur þar sem um 40 fríir og aðgengilegir viðburðir stóðu fjölskyldum til boða. Heildarfjöldi viðburða í Hörpu sem tengjast barnamenningu var alls 193 og endurspeglar vel þær stefnuáherslur að Harpa sé húsið okkar allra – ekki síst yngstu gestanna.

Hörpustrengir

Eigið viðburðahald dótturfélagsins Hörpustrengja er jafnframt mikilvægur þáttur í því að efla fjölbreytni í tónleikahaldi og auka aðgengi að listum. Á árinu stóð félagið fyrir tveimur stórum listviðburðum í Eldborg; sviðsetningu tón- og dansverksins Revolta á vegum kammersveitarinnar Geneva Camerata og tónleikum jazzsöngkonunnar Cécile McLorin Salvant ásamt hljómsveit, í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur. Báðir viðburðirnir hlutu afar jákvæða dóma fyrir listræn gæði og stuðluðu að aukinni fjölbreytni í tónleikahaldi á Íslandi.

Tónleikaröðin Upprásin og Upptakturinn – tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna eru einnig verkefni sem styðja við aðgengi grasrótar íslenskrar tónlistar og sköpun, fræðslu og þátttöku barna og ungmenna á vettvangi Hörpu.

Alþjóðleg miðstöð og áfangastaður

Á árinu fóru fram 49 ráðstefnur, þar af 28 alþjóðlegar, sem rúmlega 18.600 gestir sóttu. Þrátt fyrir að viðburðum hafi fækkað lítillega frá metárinu 2024 var eftirspurnin áfram sterk og tæplega 262 þúsund aðgöngumiðar voru afgreiddir í gegnum miðasölu Hörpu á árinu. Heildarvelta miðasölu nam um 1.966 milljónum króna og jókst um 5,5% á milli ára.

Á árinu var opnuð ný upplifunar- og fræðslusýning, Volcano Express, sem rekin er á grundvelli langtíma rekstrarleyfissamnings við Hörpu. Um 62.000 gestir sóttu sýninguna á fyrsta starfsári hennar og er hún gott dæmi um þá þróun sem hefur átt sér stað í þjónustuframboði hússins þar sem markvisst er unnið að því að auka aðdráttarafl Hörpu fyrir erlenda gesti og fjölga heimsóknum ferðamanna jafnt sem íbúa í húsið.

Auk þess að vera stærsta viðburðahús landsins er Harpa einn fjölsóttasti viðkomustaður ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Gestakomur töldust um 1,6 milljónir og því til viðbótar má gera ráð fyrir umtalsverðum fjölda barna sem sækir fjölbreytta barnamenningarviðburði.

Ábyrgur rekstur þrátt fyrir áskoranir

Rekstur samstæðu Hörpu var tekjulega nánast á pari við áætlun ársins, en efnahagsumhverfi og aðrar áskoranir höfðu neikvæð áhrif á kostnaðarhliðina þrátt fyrir aðhald í rekstri. Tekjur af starfseminni námu 1.838 milljónum króna og rekstrartekjur með framlögum eigenda samtals 2.472 milljónum króna. Rekstrargjöld samstæðunnar námu alls rúmum 2.300 milljónum króna og hækkuðu um 5% á milli ára.

Tap að fjárhæð 138,1 milljón króna varð af heildarstarfsemi samstæðunnar á árinu að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða. Afskriftir samstæðunnar námu á sama tíma 445 milljónum króna og hækkuðu á milli ára, sem undirstrikar kostnaðinn sem fylgir viðhaldi stórra, tæknilega flókinna menningarinnviða og listaverks á borð við Hörpu.

Vinnu við fjölmörg umbótaverkefni var haldið áfram s.s. mótun áhættustefnu og gerð áhættumats, innleiðingu öryggisáætlunar á sviði vinnuverndar, áframhaldandi styrking innra eftirlits umhverfis í samvinnu við endurskoðunarnefnd og aukna sjálfvirkni í ferlum m.a. með nýtingu gervigreindar. Lokið var við endurbætur á vesturþaki hússins auk þess sem fjárfest var áfram í nauðsynlegum uppfærslum á ýmsum tæknibúnaði í viðburðahaldi.

Mikilvægur áfangi náðist á árinu með undirritun samnings um rekstrarframlög eigenda til næstu fimm ára sem eykur til muna fyrirsjáanleika og rekstraröryggi ásamt því að skerpa á menningar- og samfélagshlutverki Hörpu.

Hörpu áhrifin

Á árinu 2025 var einnig kynnt skýrsla um hagræn áhrif starfseminnar í Hörpu, svokölluð Hörpuáhrif. Niðurstöður hennar sýna svart á hvítu að Harpa skapar umtalsverðan efnahagslegan ávinning með beinum, afleiddum og óbeinum hætti og gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegu viðburðahaldi á Íslandi.

Sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af starfsemi Hörpu og nær til allra sviða rekstrar og starfsemi – frá viðburðahaldi og þjónustu til mannauðs, stjórnarhátta og nýtingu auðlinda. Markvisst er unnið að því að stuðla að meiri inngildingu og góðu aðgengi að menningarviðburðum og tryggja samfélagslega ábyrg vinnubrögð í allri starfsemi hússins.

Fylgst er með þeim umhverfisáhrifum sem hljótast af daglegri starfsemi Hörpu og reynt er að lágmarka neikvæðu áhrifin með taktfastri vinnu að settum markmiðum. Mikil notkun á rafmagni og heitu vatni í stóru húsi sem er í mikilli starfsemi 364 daga á ári hefur helstu neikvæðu áhrifin og er sífellt leitað nýrra leiða til að lágmarka þau. 

Harpa uppfyllir öll fimm Grænu skrefin í opinberum rekstri og árið 2022 hlaut Harpa Svansvottun sem ráðstefnuhús. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggir á óháðri vottun og viðmiðum sem staðfestir strangar umhverfis- og gæðakröfur starfseminnar. Vottunin styrkir samkeppnishæfni hússins í alþjóðlegu samhengi.

Alþjóðleg sókn

Það er lykilatriði að Harpa sé samkeppnishæf á alþjóðlegum mörkuðum. Þetta skiptir höfuðmáli varðandi rekstrargrundvöll félagsins sem og verðmætasköpun í stærra samhengi fyrir hagkerfið. Hlutverk hússins á þessu sviði er að fjölga tækifærum og stækka kökuna fyrir alla sem starfa á vettvangi menningar, viðburðahalds og ferðaþjónustu hér á landi. En það eru blikur á lofti þegar ófriðlega horfir um heimsbyggðina, vaxandi spenna ríkir á milli helstu hagkerfa með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á fyrirtæki og fólk. Harpa mun þrátt fyrir þetta halda ótrauð áfram að sækja fram sem einstakur tónleika- og fundarstaður í öruggu og friðsælu umhverfi.

Framtíðarsýn okkar er því óbreytt – að Harpa sé ávallt á heimsmælikvarða – sem undirstrikar það markmið að rækta upp nýja möguleika fyrir menningu, atvinnulíf og samfélag.

Hörpuhjartað

Velgengni Hörpu hvílir á sterkri liðsheild starfsfólks og trausti eigenda og almennings.

Við eigum allt undir því að vera eftirsóttur og góður vinnustaður fyrir þau sem vilja starfa í faglegu og skapandi umhverfi. Um 100 manns eru á launaskrá Hörpu auk þess góða hóps verktaka sem kemur að viðburðahaldi og ýmiss konar verkefnum í tengslum við fasteignina.

Við segjum gjarnan að það sé ekkert einfalt við Hörpu og er þar sama hvar drepið er niður fæti. Húsið er eitt það tæknilega flóknasta sem byggt hefur verið á Íslandi og umfang og fjölbreytni viðburðahaldsins í Hörpu er iðulega tvöfalt meiri en hjá mörgum stórum viðburðahúsum á margfalt stærri mörkuðum. Reksturinn hefur frá fyrsta degi verið áskorun og forsendurnar nokkuð snúnar eins og alþjóð þekkir. Það hefur því reynt á mannauðinn í Hörpu og hann orðið að hafa nóg af þrautseigju og hugrekki í farteskinu. Og svo tölum við gjarnan um Hörpuhjartað – en þar býr helgunin og metnaðurinn hjá hópnum sem hefur gert þetta allt mögulegt.

Tímamót

Harpa fagnar 15 ára afmæli vorið 2026. Hún er því búin að slíta barnsskónum og það styttist í fullt sjálfræði. Eins og öll fyrirtæki hefur Harpa gengið í gegnum mismunandi þroskaskeið með tilheyrandi vaxtarverkjum og áskorunum. Liðið ár færði okkur slíkt verkefni. Þegar hafa verið stigin mikilvæg skref til að innleiða nauðsynlegar breytingar sem munu skila okkur með farsælli hætti fram á veg. Það verður áfram sameiginlegt viðfangsefni stjórnenda og starfsfólks að gera Hörpu að enn betri vinnustað.

Ég vil þakka starfsfólki Hörpu fyrir liðið ár með öllum sínum áskorunum og sigrum. Með traustri áhöfn og tímabærum breytingum mun Harpa sigla áfram með óskabyr í seglum. 

Sömuleiðis færi ég stjórn og eigendum Hörpu þakkir okkar starfsfólks fyrir uppbyggilegt aðhald og dýrmætan stuðning.

Svanhildur Konráðsdóttir
Forstjóri Hörpu

Framkvæmdastjórn

Andri Guðmunds­son, fram­kvæmda­stjóri viðburða- og tækni­sviðs

Andri Guðmundsson hefur verið tæknistjóri Hörpu tónlistar og ráðstefnuhúss frá vordögum 2019. Hann hefur unnið hjá Hörpu frá 2014 með hléum. Andri hefur allt tíð starfað í viðburða- og tæknibransanum, um tíma í Bretlandi meðal annars fyrir London Fashion Week, Microsoft og Chelsea Football Club.

a man in a suit and blue shirt is smiling in front of a window .

Ásta Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri viðskipta- og sölu­sviðs

Ásta Ólafsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri viðskipta og sölusviðs Hörpu frá janúar 2022. Ásta er með BA próf í íslensku og fjölmiðlafræði og diploma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Íslands. Ásta hefur starfað við ferðaþjónustu mestan hluta starfsferilsins með áherslu á kynningu og markaðssetningu á Íslandi og Grænlandi sem áfangastaðar til betur borgandi gesta þar sem rík áhersla var á vöruþróun, uppbyggingu vörumerkja, markaðsmál og þjónustuupplifunar gesta.

Berg­lind Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs

Berglind Ólafsdóttir hefur starfað í Hörpu frá vordögum 2018. Berglind er viðskipta- og rekstrarfræðingur með áherslu á markaðs- og mannauðsmál, en stundaði einnig meistaranám með áherslu á fjármál og stjórnun fyrirtækja. Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu og hefur allan sinn starfsferill starfað við stjórnun rekstrar-, fjármála og mannauðsmála. Berglind var framkvæmdastjóri Borgarleikhússins áður en hún kom til starfa í Hörpu en starfaði í 15 ár áður hjá Reykjavíkurborg þangað sem hún kom úr einkageiranum.

a woman wearing a blue shirt and a necklace is smiling for the camera .

Elín Hjálms­dóttir, mannauðs- og gæða­stjóri

Elín er með víðtæka reynslu á sviði mannauðs- og gæðamála, þar af um 17 ár sem stjórnandi. Elín starfaði lengst af hjá Eimskip, síðast sem framkvæmdastjóri mannauðssviðs, en kemur til Hörpu frá Alcoa Fjarðarál á Reyðarfirði þar sem hún var framkvæmdastjóri mannauðsmála síðastliðin tvö ár. Elín hefur unnið að stefnumótun til lengri og skemmri tíma og leitt áfram þróun og breytingar á sviði ráðningamála, fræðslustarfs, kjaramála, vinnustaðarmenningar, stjórnendaráðgjafar, mannauðsmælinga o.fl.

a woman in a tan jacket and white shirt is smiling for the camera .

Jón Gretar Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri fast­eigna- og umhverf­is­sviðs

Jón Gretar Jónsson hefur verð framkvæmdastjóri fasteigna- og umhverfissviðs Hörpu frá miðju ári 2021. Jón Gretar starfaði sem framkvæmdastjóri rekstar- og útleigusviðs hjá Landfestum hf. Við samruna Landfesta og Eikar fasteignafélags tók hann við starfi framkvæmdastjóra rekstarsviðs og frá árinu 2019-2021 sinnti hann starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Eik.

a bald man in a blue suit and black shirt is smiling for the camera .

Svan­hildur Konráðs­dóttir, forstjóri

Svanhildur Konráðsdóttir hefur verið forstjóri Hörpu frá vordögum 2017. Hún starfaði við blaðamennsku og ritstjórn uns leiðin lá til Bretlands í háskólanám í samskipta- og ímyndarfræðum með áherslu á stjórnmál og menningu. Svanhildur starfaði hjá Sjónvarpinu við þáttinn Dagsljós en síðan að menningar-, markaðs- og ferðamálum, lengst af sem sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg.

a woman wearing glasses and a black dress is standing in front of a gray wall .

Skipurit
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

An organizational chart for an Icelandic institution, detailing its board, CEO, and departmental structure.