Viðburðir á heims­mæli­kvarða

Árið 2025 var viðburðaríkt ár í Hörpu með um 1,6 milljón gestaheimsókna og rúmlega 1.300 viðburðum af öllum stærðum og gerðum. Starfsemin spannaði fjölbreytta dagskrá menningar- og listviðburða, auk funda, ráðstefna og annarra viðburða tengdum atvinnulífi og samfélagi.

Listviðburðir voru stærsti einstaki flokkur viðburða á árinu og námu um 44% af heildarviðburðum. Þar á meðal voru tónleikar og aðrir sviðslistaviðburðir með íslenskum og erlendum listamönnum. Harpa var áfram heimavöllur íslenskrar tónlistar og vettvangur fyrir fjölbreyttar tónlistarstefnur og listform.

Ráðstefnur skipuðu jafnframt stóran sess í kjarnastarfseminni og voru um 35% af heildarviðburðum ársins. Innlendar og alþjóðlegar ráðstefnur höfðu verulegt vægi fyrir rekstur, nýtingu húsnæðis og stöðu Hörpu sem ráðstefnuhúss á heimsmælikvarða.

Tónleikahald og listviðburðir

Árið 2025 var fjölbreytt og öflugt í tónleikahaldi í Hörpu og steig fjöldi innlendra sem erlendra listamanna á svið hússins. Harpa staðfesti enn frekar stöðu sína sem heimavöllur íslenskrar tónlistar og alþjóðlegur vettvangur fyrir tónlist og sviðslistir.

Alls fóru fram 846 tónleikar og listviðburðir á árinu. Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt 95 tónleika og opnar æfingar fyrir rúmlega 70.000 gesti, auk 19 tónleikakynninga. Stórsveit Reykjavíkur hélt átta tónleika og Múlinn Jazzklúbbur stóð fyrir ríflega 40 tónleikum. Sígildir sunnudagar voru áfram mikilvægur vettvangur fyrir lifandi kammertónlist.

Af einstökum viðburðum ársins má nefna 80 ára afmælistónleika Gunnars Þórðarsonar og fimm minningartónleika um Vilhjálm Vilhjálmsson. Alþjóðlegar stórstjörnur á borð við Norah Jones og Bryan Adams fylltu Eldborg tvisvar sinnum hvor um sig, auk þess sem Wardruna, In Flames og Manowar komu fram í júní.

Sterk innlend dagskrá setti einnig svip á árið. HAM og Apparat komu fram saman í Eldborg, Nýdönsk hélt fimm tónleika, Stuðmenn fögnuðu 50 ára afmæli Sumars á Sýrlandi og Vitringarnir 3 héldu 20 tónleika í Silfurbergi í aðdraganda jóla. Þá fóru einnig fram 80 ára afmælistónleikar Magnúsar Eiríkssonar, en hann lést í byrjun árs 2026.

A smiling man with white hair claps in a dark, multi-tiered theater packed with an audience.

80 ára afmælistónleikar Magnúsar Eiríkssonar

Ráðstefnuhús á heimsmælikvarða

Ráðstefnuhald er mikilvægur hluti af kjarnastarfsemi Hörpu, þar sem lögð er áhersla á samkeppnishæfni hússins á alþjóðlegum vettvangi. Sjálfbærni er samofin starfseminni og er Harpa Svansvottað ráðstefnuhús.

Á árinu fóru fram 471 innlendar og alþjóðlegar ráðstefnur og fagviðburðir, þar sem fyrirtæki, stofnanir og samtök komu saman til umræðu, tengslamyndunar og þekkingarmiðlunar. Ráðstefnur og fundir voru um 35% af heildarfjölda viðburða í húsinu og skiptu verulegu máli fyrir rekstur og nýtingu Hörpu.

Meðal stærstu alþjóðlegu viðburða ársins var Hringborð Norðurslóða (Arctic Circle), sem haldið var í tólfta sinn í Hörpu með yfir 2.000 gestum frá 70 löndum. Þá fór Reykjavík Global Forum fram með um 500 kvenleiðtogum víðs vegar að úr heiminum, úr opinbera og einkageiranum. Reykjavíkurskákmótið setti nýtt þátttökumet með 419 alþjóðlegum keppendum og UTmessan var haldin í tólfta sinn og heldur áfram að stækka.

Af öðrum stórum fagviðburðum má nefna Mannauðsdaginn, einn stærsta viðburð landsins á sviði stjórnunar- og mannauðsmála með yfir 1.200 gesti. Þá fór ISTP, alþjóðleg ráðstefna kennarastéttarinnar, fram í húsinu, auk IGEC-ráðstefnunnar þar sem fjallað var um græna orku, gervigreind og tengd málefni.

Arctic Circle 2025

Einn stærsti ferðamannasegull höfuðborgarsvæðisins

Á árinu 2025 fóru fram 162 listviðburðir sérstaklega ætlaðir ferðamönnum, þar af 84 leiksýningar. Frá opnun hússins hafa milljónir gesta heimsótt Hörpu og er hún í dag einn af stærstu ferðamannaseglum höfuðborgarsvæðisins. Gestir sækja húsið bæði vegna fjölbreyttrar menningardagskrár og hins einstaka arkitektúrs, sem hlotið hefur fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar.

Undanfarin tvö sumur hefur Harpa boðið upp á hádegistónleikaröðina Midday Music í Eldborg. Þar sitja áhorfendur á sviðinu sjálfu og upplifa lifandi tónlist í nánum tengslum við flytjendur, með Eldborgarsalinn sem sjónrænan og hljóðrænan bakgrunn. Tónleikaröðin hefur skapað sér sérstöðu sem aðgengileg menningarupplifun fyrir ferðamenn yfir daginn. Gestum býðst einnig að fara í skoðunarferðir um Hörpu þar sem saga hússins er rakin, skyggnst er í hönnun og arkítektúr með viðkomu í rýmum sem annars eru almenningi lokaðir.

Í mars var upplifunarsýningin The Volcano Express opnuð á K2 og styrkti enn frekar stöðu Hörpu sem áfangastaðar ferðamanna. Sýningin er fræðandi upplifun um eldfjöll Íslands og höfðar jafnt til erlendra gesta sem heimamanna. Sýningin er opin alla daga vikunnar og sýnd á 15 mínútna fresti.

Two musicians, one at a grand piano and one standing, on stage in an empty red-seated concert hall.

Midday Music hádegistónleikar í Eldborg

Hátíðir

Hátíðir eiga sér fastan sess í starfsemi Hörpu og fóru fjölbreyttar og metnaðarfullar tónlistar- og menningarhátíðir fram í húsinu á árinu 2025. Árið hófst sem fyrr með Myrkum músíkdögum, þar sem áhersla er lögð á samtímatónlist, ný íslensk verk og framúrskarandi flytjendur.

Hin glæsilega barokkhátíð Reykjavík Early Music Festival fór fram öðru sinni í Hörpu í dymbilviku og tónlistarhátíðin Seigla var haldin um miðjan ágúst en þar er hefðbundnu tónlistarformi teflt saman við nýja og óhefðbundna nálgun.

Barnamenningarhátíð og Big Bang barnamenningarhátíð fóru fram víðs vegar um húsið í apríl og nutu frábærrar aðsóknar barna og fjölskyldna. Músíktilraunir, tónlistarhátíð ungmenna á aldrinum 13–25 ára, fóru fram í Norðurljósum í mars en hátíðin veitir ungum flytjendum ómetanlegan vettvang til sköpunar og kynningar.

Jazzhátíð Reykjavíkur var haldin í lok sumars og steig ein eftirsóttasta jazzsöngkona heims, Cécile McLorin Salvant, þrefaldur Grammy-verðlaunahafi, á svið á lokatónleikum hátíðarinnar í Eldborg. Þá fóru Óperudagar fram í Hörpu í október með fjölbreyttri dagskrá tengdri óperulist.

Menningarnótt er stærsti árlegi viðburður Hörpu og einstakt tækifæri fyrir landsmenn til að upplifa Hörpu – hús þjóðarinnar. Mörg þúsund manns lögðu leið sína í Hörpu og nutu litskrúðugrar og glæsilegrar dagskrár þar sem hundruðir listamanna lögðu sitt lóð á vogarskálarnar.

Viðburðir voru á fjórða tug og teygðu sig um alla Hörpu með skapandi smiðjum fyrir börn og fjölskyldur með ÞYKJÓ, Sóleyju Stefánsdóttur og Kordu Samfóníu, tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Stórsveit Reykjavíkur og Blúsfélagi Reykjavíkur og fjölbreyttri dagskrá með Reykjavík Bókmenntaborg, Myrkum músíkdögum, List án landamæra og Kammermúsíkklúbbnum svo örfáir viðburðir séu nefndir.

A BMX rider in a pink hoodie performs a mid-air backflip in front of a modern glass building and a crowd of spectators.

BMX BRÓS leika listir sínar á Hörputorgi á Menningarnótt

Tónleikaraðir

Tónleikaraðir eru mikilvægur þáttur í hlutverki Hörpu sem lifandi menningarmiðstöðvar og heimavallar fyrir íslenska tónlist. Með því að standa að og styðja reglubundnar tónleikaraðir stuðlar Harpa að samfellu í tónlistarlífi, eflir aðgengi almennings að vandaðri dagskrá og veitir bæði rótgrónum og nýjum flytjendum vettvang til að þróa list sína. Þessar raðir gegna jafnframt lykilhlutverki í að styðja grasrót, nýsköpun og uppbyggingu framtíðarkynslóða tónlistarfólks.

Tónleikaröðin Sígildir sunnudagar var áfram dýrmætur og mikilvægur vettvangur fyrir lifandi kammertónlist í framúrskarandi flutningi og bauð gestum upp á reglulega klassíska tónlistardagskrá yfir veturinn.

Tilraunagleði og nýsköpun einkenndu áfram tónleikaröðina Upprásina, samstarfsverkefni Hörpu, Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og Rásar 2. Alls komu 27 hljómsveitir og sólólistamenn fram innan seríunnar á árinu. Verkefnið er liður í dagskrárstefnu Hörpu um að auka aðgengi grasrótar og ungs tónlistarfólks að sviðum hússins og efla fjölbreytni í dagskrá þess, þvert á tónlistarstefnur.

Tónleikaröðin Velkomin heim fór að venju fram í júlí og gaf ungu tónlistarfólki, sem nýlega hefur lokið námi erlendis, tækifæri til að koma fram og kynna sig fyrir íslenskum áheyrendum. Verkefnið er samstarfsverkefni Hörpu og F.Í.T. sem er klassísk deild FÍH.

Two performers on a stage with vertical pink and yellow lights, a large screen displaying an abstract orange light tunnel, and an audience.

MOTET á tónleikum Upprásarinnar í nóvember

Hörpustrengir

Í samstæðunni er rekstrarfélagið Hörpustrengir sem hefur þann tilgang að standa fyrir völdum viðburðum í Hörpu sem marka spor í íslenskt tónlistar- og menningarlíf og myndu ekki verða að veruleika án aðkomu félagsins.

Á árinu stóðu Hörpustrengir fyrir tveimur alþjóðlegum viðburðum. Í júní bauð kammersveitin Geneva Camerata upp á einstaklega áhrifamikla sviðsetningu á fimmtu sinfóníu Dmitris Shostakovitsj í Eldborg undir heitinu Revolta. Flutningurinn hlaut standandi lófatak, dynjandi fagnaðarlæti í Eldborg og frábæra dóma en Magnús Lyngdal Magnússon, gagnrýnandi Morgunblaðsins, taldi viðburðinn vera einn af hápunktum ársins í íslensku tónlistarlífi.

Í ágúst kom svo ein eftirsóttasta jazzsöngkona heims, CécileMcLorin Salvant, þrefaldur Grammy-verðlaunahafi, fram á lokatónleikum Jazzhátíðar í Reykjavíkur sem fram fóru í Eldborg. Viðburðurinn var samstarfsverkefni Hörpu og Jazzhátíðar og var glæsilegur og áhrifamikill lokapunktur á afar vel heppnaðri jazzhátíð í Hörpu.

Hörpustrengir stóðu einnig að glæsilegri hátíðardagskrá á Menningarnótt, fjölda barnaviðburða og Upptaktinum, tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna.

A singer in a black top with white polka dots performs on stage with a keyboardist, bassist, and drummer.

Cécile McLoren Salvant ásamt tríói sínu í Eldborg á Jazzhátíð Reykjavíkur