Ársreikningar 2025
Rekstur samstæðu Hörpu var tekjulega nánast í samræmi við áætlun ársins. Heldur óhagfellt efnahagsumhverfi hafði neikvæða áhrif á kostnaðarhliðina þrátt fyrir aðhald í rekstri.
Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 171,5 milljónir króna árið 2025, samanborið við 300,6 milljónir króna árið 2024.
Tekjur af starfseminni lækkuðu um 1,1% á milli ára og námu 1.837,9 milljónum króna samanborið við 1.858,9 milljónir króna árið 2024.
Rekstrargjöld samstæðunnar námu alls 2.300,3 milljónum króna og hækkuðu um 5% á milli ára.
Tap af heildarstarfsemi samstæðunnar á árinu 2025 nam 138,1 milljón króna að teknu tilliti til tekjuskatts, afskrifta og fjármagnsliða, samanborið við 13,8 milljóna króna tap árið 2024.
Eigið fé samstæðunnar nam 10.619 milljónum króna í árslok 2025 og er eiginfjárhlutfallið 29,6%.
Ársreikningar samstæðunnar