Íbúar Hörpu
Íbúar Hörpu eru þær tónlistar- og menningarstofnanir sem hafa fasta starfsemi og varanlega aðstöðu í húsinu. Með reglubundinni dagskrá, fjölbreyttu listsköpunarstarfi og sterkri tengingu við ólíka markhópa leggja íbúar grunn að lifandi menningarhúsi og styðja við meginmarkmið Hörpu um að efla íslenskt tónlistar- og menningarlíf.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt 76 fjölbreytta tónleika í Hörpu árið 2025 fyrir tæplega 70.000 gesti. Auk þess stóð SÍ fyrir 22 kynningum fyrir tónleika og opnaði dyrnar að 17 lokaæfingum í Eldborg. Meðal hápunkta ársins verður að nefna 75 ára afmælistónleika hjómsveitarinnar í mars undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra, þar sem Víkingur Heiðar Ólafson var í einleikshlutverkinu. Afmælistónleikarnir voru í beinni sjónvarps- og útvarpsútsendingu á RÚV. Yngstu gestunum var boðið á Barnastundir í tilefni afmælisins, m.a. á Pétur og úlfinn og hljómsveitin stóð fyrir opnu samspili. Fjölmargir einleikarar og stjórnendur úr fremstu röð komu fram með hljómsveitinni á áskriftartónleikum, meðal annara Alice Sara Ott, Kian Soltani og Barbara Hannigan. Ólafur Kjartan kom fram í Óperuveislu ásamt gestum og þá hélt Sinfó tónleika með KK og Mugison auk bíótónleika með lifandi undirleik við Harry Potter og eldbikarinn. SÍ leggur ríka áherslu á fjölbreytt fræðslustarf. Hátt í 10.000 nemendum var boðið á skólatónleika þar sem dagskráin var sniðin að ólíkum skólastigum, allt frá leikskóla til menntaskóla. Barnastundir og fjölskyldutónleikar Litla tónsprotans voru á sínum stað ásamt tvennum opnum tónleikum í Eldborg á Menningarnótt. Útvarpað var beint frá nær öllum tónleikum þjóðarhljómsveitarinnar á Rás 1 og sjónvarpað frá sjö tónleikum á RÚV. Auk þess fóru fram hljóðupptökur í Hörpu fyrir alþjóðlegar hljómplötuútgáfur.

Stórsveit Reykjavíkur heldur úti metnaðarfullri tónleikadagskrá á hverjum vetri. Starfsemi þeirra blómstrar í Hörpu og sómir Stórsveitin sér vel á glæsilegum og stjörnum prýddum tónleikum í öllum sölum hússins. Á árinu hélt Stórsveitin sína árlegu Gullaldartónleika, fjölskylduball á Menningarnótt, tvenna tónleika undir stjórn Geir Lysne, eins þekktasta stórsveitastjórnanda heims og tónleika með söngkonunum Bríeti og GDRN. Jólafjör Stórsveitarinnar var á sínu stað sem og Stórsveitamaraþon þar sem öllum stórsveitum landsins, ungum sem öldnum, nemendum sem atvinnumönnum, er boðin þátttaka.

Maxímús Músíkús á föst heimkynni í Hörpu og á þátt í að skipuleggja skemmtilega viðburði fyrir smáfólk allt árið um kring. Hann er reglulegur gestur á barna- og fjölskylduviðburðum Hörpu og barnatónleikum Sinfóníunnar. Maxímús fer reglulega í skoðunarferðir og heldur sögustund fyrir börn á hinum ýmsu tungumálum, s.s. íslensku táknmáli, íslensku, ensku, spænsku, pólsku og arabísku.
