Fólkið okkar

Vinnustaðurinn

Harpa er ungt fyrirtæki og í stöðugri þróun. Sú staðreynd felur ekki í sér veikleika heldur frekar tækifæri, enda hraðar eiga sér stað örar breytingar bæði samfélagslegar og tæknilegar. Árið 2025 var ár umbóta, endurskoðunar og drög lögð að markvissri framtíðaruppbyggingu mannauðsmála í Hörpu. Við höfum svigrúm til að móta, bæta og styrkja vinnustaðinn með framtíðarsýn Hörpu og tilgang að leiðarljósi.

Markmið Hörpu er að vera eftirsóttur vinnustaður og fyrsti valkostur þeirra sem vilja starfa í faglegu, skapandi og krefjandi umhverfi. Til að svo megi verða þarf vinnustaðurinn sjálfur að þróast í takt við breyttar aðstæður. Tæknibreytingar, breyttar væntingar starfsfólks og skýrari sýn á jafnvægi vinnu og einkalífs kalla á ákveðið endurmat, aðferðir og ný viðmið.

a poster that says harpa on it

Áherslur á árinu

Á árinu var farið í víðtæka greiningu og endurskoðun á fjölmörgum þáttum vinnuumhverfisins og þar fékk umbótavinna tengt viðburðahaldi sérstaka athygli. Horft var til skipulags innanhúss, aukinnar sjálfvirknivæðingar, skilvirkari verkferla og markvissari samskipta við viðskiptavini. Hafist var handa við að sjálfvirknivæða mikilvæga ferla bæði innanhúss og í samskiptum við viðskiptavini með ágætum árangri. Mörgum umbótaverkefnum var hrundið af stað á árinu. Einhverjum þeirra lauk með sýnilegum árangri en önnur eru enn í vinnslu og munu halda áfram á næsta ári enda mun þróun seint ljúka, verkefnið er að halda í við þróun og vera leiðandi þar sem þess er kostur. Markmiðið er skýrt: að bæta bæði upplifun viðskiptavina og bæta starfsumhverfi með því að byggja upp vinnustað sem er sjálfbær, faglegur og samkeppnishæfur til framtíðar.

Gæði viðburða, þjónustu og upplifunar gesta eiga ávallt að vera á heimsmælikvarða. Til þess þarf bæði sterka fagþekkingu, mikinn metnað og vinnustað sem styður við ætlaðan árangur.

Starfsfólk

Starfsfólk Hörpu telur tæplega 100 einstaklinga. Í árslok 2025 voru um 44 fastráðnir í fullu starfi og 48 starfsmenn í hlutastörfum. Að auki koma fjölmargir verktakar að ólíkum verkefnu og eftir þörfum hverju sinni. Þessi fjölbreytileiki skapar kraftmikið starfsumhverfi þar sem samvinna og samhæfing skipta sköpum.

Framúrskarandi fagfólk starfar í Hörpu. Verkefni mannauðsstjórnunar er að tryggja að umhverfið styðji við þennan mannauð – að ferlar séu skýrir, ábyrgð vel skilgreind og upplýsingaflæði skilvirkt. Á árinu hófst vinna við að efla innra samstarf og styrkja stjórnendastarf með markvissari verkfærum og stuðningi.

Starfsmannavelta fá árinu 2025 var 14%. Í þeirri tölu eru bæði þeir sem ákváðu að leita nýrra tækifæra og þeir sem létu af störfum sökum aldurs.

Í ljósi umfangsmikilla breytinga og þróunarverkefna telst sú velta innan eðlilegra marka og gefur jafnframt svigrúm til endurmats á mönnun og styrkingar teymisins.

Á haustmánuðum fékk Harpa staðfestingu á gildri jafnlaunavottun. Launamunur kynjanna mældist vel innan viðmiðunarmarka sem eru 3%. Mælingar sýndu að karlar voru með 0,7% hærri laun en konur. Stefna Hörpu er að vera samkeppnishæf í launum og áfram verður haldið við markvissa vinnu til að tryggja jafnræði og gagnsæi í launasetningu.

Starfsfólk Hörpu tekur árlega þátt í samfélagsverkefnunum Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna en slík verkefni eru góð til að styðja við liðsheild, efla samvinnu og styrkja jákvæða vinnustaðamenningu.

Á árinu vann Harpa sinn flokk í keppninni “Hjólað í vinnuna. Það er óhætt að segja að metnaður starfsfólks nái langt út fyrir vinnutengd verkefni. Slík verkefni styðja við liðsheild, efla samvinnu og styrkja jákvæða vinnustaðamenningu.

Vinnustaðarmenning og framtíðarsýn

Vinnustaðarmenning Hörpu einkennist af metnaði og ríkri ábyrgðarkennd. Á árinu 2025 var sú menning styrkt með aukinni áherslu á skýrleika, gagnsæi og sameiginlega ábyrgð. Hafin var vinna við að þróa vinnustaðarmenningu og styrkja leiðtoga til að leiða breytingar og nýsköpun.

Harpa hefur alla burði til að vera á heimsmælikvarða. Verkefnið næstu missera er að halda áfram að þróa vinnustaðinn af festu, metnaði og framsýni.

Starfsánægja

Reglulega er lögð fyrir starfsmannakönnun þar sem starfsfólki gefst kostur á að meta ýmsa þætti vinnuumhverfisins. Niðurstöður eru ávallt kynntar starfsfólki og stjórnendur fara yfir niðurstöður með starfsfólki viðeigandi sviða. Harpa hefur nýtt hugbúnað HR Monitor við framkvæmd þessara kannana og með því tryggt trúnað og að svör séu ekki rekjanleg til þátttakenda.

Í hverri mælingu eru metnir átta fastir þættir á skala frá 1 til 5 en á bak við hvern þátt getur Harpa valið úr ólíkum spurningum. Niðurstöðurnar flokkast í þrjú svið: „á aðgerðarbili“, „góðar niðurstöður“ eða „mjög góðar niðurstöður“. Starfsfólk hefur einnig tækifæri til að svara opinni spurningu með textasvari. Meðaltal niðurstaðna gefur heildarárangur hverju sinni.


Þeir þættir sem ávallt eru metnir eru eftirfarandi:

  1. Gæði og tengsl
  1. Starfsánægja
  1. Sjálfstæði til ákvarðanatöku
  1. Stuðningur frá stjórnendum
  1. Kröfur um árangur
  1. Skýr framtíðarsýn
  1. Áhugi, virðing og hollusta
  1. Þjálfun og þróun

Á árinu 2025 voru þrjár kannanir lagðar fyrir, í janúar, október og nóvember. Meðaltal niðurstaðna þessara þriggja kannana sýna góðar niðurstöður, eða heildarárangur 4.04 af 5 mögulegum.

a black background with red purple and orange lines

Fyrirtæki ársins - VR könnun

Auk reglulegra starfsmannakannana tekur Harpa þátt í árlegri könnun VR á „Fyrirtæki ársins“. Í þeirri könnun er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í innra starfsumhverfi og gefst starfsfólki Hörpu kostur á að svara þeirri könnun óháð félagsaðild í VR. Yfir 70% starfsfólks tók þátt í könnuninni árið 2025 og var heildareinkunn Hörpu 4,15 af 5 mögulegum.

a graph showing the number of people in each country .

Þekking og þróun

Starfsfólk Hörpu er hvatt til að fylgjast með þeim breytingum og þróun sem á sér stað í þeirra fagi og í samfélaginu hverju sinni og þróa hæfileika sína á sínum forsendum. Starfsfólk og stjórnendur bera sameiginlega ábyrgð á þekkingaröflun og þróun. Þar fer saman drifkraftur starfsfólks til að bæta við sig þekkingu og stuðningur stjórnenda til að svo megi verða. Regluleg starfsmannasamtöl eru mikilvægur hlekkur í skipulagi þekkingaröflunar, þar sem uppbyggileg umræða og endurgjöf á sér stað og markmið sett sem leiða til aukins árangurs. Auk þessa gefst starfsmönnum kostur á aðild að ýmsum fræðslufélögum sem er mikilvægt fyrir aukna þekkingaröflun og tengsl í fjölbreyttum greinum.

a group of people are posing for a picture in a large building .

Jafnrétti

Í Hörpu er virk jafnréttis- og mannréttindastefna. Kjarninn í þeirri stefnu er að skapa sveigjanlegt og jákvætt starfsumhverfi þar sem virðing og jöfn tækifæri eru höfð í hávegum. Stefnan er skuldbinding Hörpu til að vinna markvisst að umbótum í jafnréttis- og mannréttindamálum, þar sem fylgt er eftir lögum og reglum um jafna stöðu og tækifæri starfsfólks.

 

Órjúfanlegur hluti jafnréttis- og mannréttindastefnunnar er skuldbinding Hörpu um að launasetning sé í samræmi við kröfur jafnlaunavottunar. Harpa er með faggilta jafnlaunavottun, en meginmarkmið slíkrar vottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Jafnvægisvogin

Á árinu hlaut Harpa viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, sem er mælitæki sem hefur eftirlit með stöðu og þróun kynjajafnréttis í stjórnum og framkvæmdastjórnum. Tilgangur verkefnisins er að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi og er markmiðið að hlutföllin milli kynja séu 40/60 í framkvæmdastjórnun fyrirtækja á Íslandi.

Verkefnið gengur út á að virkja íslenskt viðskiptalíf til að vera fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir, og að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöður.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni FKA og unnið í samstarfi við Creditinfo, Deloitte, forsætisráðuneytinu, Pipar\TBWA, RÚV, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá.

Fjölskylduvænn vinnustaður

Starfsmannafélag Hörpu heitir Harkan. Flest starfsfólk sér hag sinn í að vera félagsmenn enda stendur félagið fyrir smærri og stærri viðburðum á hverju ári. Viðburðirnir eru stundum eingöngu fyrir starfsfólk en mikil áhersla hefur verið á að bjóða upp á fjölskylduvæna viðburði þar sem starfsfólki gefst kostur á að mæta með fjölskyldur sínar og taka þátt í skemmtilegum viðburðum fyrir mjög hóflegt verð. Að auki njóta félagsmenn afsláttarkjara á ýmsum stöðum.

a man is playing a guitar in front of a crowd of people .

Heilsa og öryggi

Ár hvert gefst starfsfólki kostur á að fara í almenna heilsufarsmælingu auk heyrnarmælingar. Sérfræðingar á sviði forvarna og heilsuverndar mæla almenna þætti tengda góðri heilsu og vellíðan og veita ráðleggingar á því sviði eftir atvikum. Harpa greiðir jafnframt árlegan íþróttastyrk gegn framvísun kvittunar og á árinu voru það 26 starfsmenn sem nýttu sér það.

Á árinu voru hvorki skráð slys né næstum slys. Harpa er með virkt ábendingakerfi þar sem haldið er utan tilkynningar sem varða öryggismál. Kerfið er opið starfsfólki Hörpu sem og íbúum Hörpu og fólk hvatt til að setja þar inn ábendingar varðandi öryggismál og skrá atvik ef þau verða.

Samgöngusamningur

Starfsfólk er hvatt til að nýta sér umhverfisvæna fararkosti til og frá vinnu. Með umhverfisvænum kostum er átt við allan ferðamáta annan en einkabíl, svo sem að ganga, hjóla eða ferðast með strætisvögnum.

Starfsfólki stendur til boða að gera samgöngusamning, sem gengur út á það að starfsfólk nýti sér umhverfisvænan fararkost og fái þá ákveðna upphæð í samgöngustyrk. Styrkurinn getur gilt fyrir allt árið eða eingöngu frá maí til september. Fjöldi starfsfólks Hörpu vinnur ekki á hefðbundnum dagvinnutíma og hefur það verið ein áskorun í því að hvetja starfsfólk til að nýta sér möguleikann á samgöngusamning. Í árslok 2025 voru 15 einstaklingar með samgöngusamning.

Niðurstöður könnunar sem framkvæmd var meðal starfsfólks sýnir að heildarlosun af samgöngum starfsfólks var 6 tCO₂ fyrir árið 2025, en 8,7 tCO₂ fyrir árið 2024. Má rekja það til þess að fleiri einstaklingar höfðu valið að ganga, hjóla eða taka strætó í vinnuna í stað þess að fara á einkabíl og sá möguleiki að vera með samgöngusamning hluta af árinu hefur jafnframt verið vel nýttur.