Skilmálar
Miðasölu- og endurgreiðsluskilmálar Hörpu.
Síðast uppfært 4. júní 2026.
Miðasöluskilmálar
Til að tryggja það að öll geti notið viðburða í Hörpu er mælst til þess að gestir sýni öðrum gestum, sem og starfsfólki, almenna kurteisi í orðum og gjörðum. Harpa áskilur sér rétt til að vísa fólki frá sem sýnir af sér ósæmilega eða ógnandi hegðun og fer ekki að reglum og öryggisleiðbeiningum sem gilda í Hörpu.
Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, t.d. hvort dagsetning miðasvæði, tímasetning sé rétt o.s.frv. Ekki er unnt að tryggja leiðréttingu eða breytingu á miðakaupum eftir að þau hafa farið fram.
Sendingargjald er 695 kr. fyrir heimsend gjafakort og áskriftakort.
Viðburðir í sölu eru hjá miðasölu Hörpu eru á ábyrgð viðeigandi viðburðahaldara. Viðburðahaldari er ávallt tilgreindur í upplýsingum um viðburðinn á heimasíðu Hörpu.
Með kaupum á miða samþykkir kaupandi að fylgja landslögum ásamt reglum og öryggis- leiðbeiningum Hörpu á viðburðinum.
Hafi miðakaupandi óþol, ofnæmi og/eða er viðkvæm/ur varðandi hávaða, ljós, orðfæri eða annað sem gera má ráð fyrir að komi upp á viðburðum er það á ábyrgð miðakaupanda að kynna sér aðstæður áður en að viðburði kemur.
Vinsamlega athugið að ekki er unnt að tryggja að gestum sé hleypt inn í sal eftir að viðburður hefst. Það á ábyrgð miðakaupanda að mæta tímanlega.
Óheimilt er að fara með stórar töskur eða bakpoka inn á viðburði í sölum í Hörpu.
Ekki er heimilt að áframselja miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en aðstandenda viðburðar, áskilur miðasala Hörpu sér rétt til að ógilda miðann með öllu.
Miðar merktir hjólastólum eru einungis ætlaðir fólki í hjólastól. Kaupi gestur sem er ekki í hjólastól miða í hjólastólastæði telst miðinn ógildur. Í slíkum tilvikum áskilur Harpa sér rétt til að neita miðahafa um inngöngu í salinn.
Aldurstakmark á viðburði ræðst af útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað sem leyfi hefur til áfengisveitinga eftir kl. 20.00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins nema í fylgd með forsjáraðila.
Heimilt er að sitja undir börnum yngri en 2ja ára á sýningum í öllum sölum.
Á tiltekna viðburði eru takmörk á því hve marga miða einstaklingur getur keypt. Ef fleiri miðar eru keyptir á sama nafni, kennitölu, netfangi eða kreditkorti þá áskilur miðasala Hörpu sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekinn er.
Harpa ábyrgist ekki áminningar um viðburði sem sendar eru með sms og/eða tölvupósti. Það er á ábyrgð kaupanda miða að halda utan um upplýsingar um dagsetningu og upphafstíma viðburðar. Harpa hvetur miðakaupendur til að ganga úr skugga um að upplýsingar er varða símanúmer og/eða netföng þeirra séu rétt skráðar hjá miðasölu. Rétt skráðar upplýsingar tryggja að áminningar berist til miðaeigenda.
Miðasala Hörpu og viðburðahaldari bera enga ábyrgð á persónulegum munum gesta fyrir, á meðan og/eða eftir að viðburði lýkur.
Miðasala Hörpu meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög. Persónuverndarstefna Hörpu er aðgengileg á heimasíðu Hörpu.
Notkun farsíma og myndavéla er óheimil á meðan á viðburðum stendur.
Endurgreiðsluskilmálar
Ef viðburður fellur niður er eigendum miða boðnir sambærilegir miðar á næstu dagsetningu sé þess kostur eða full endurgreiðsla á miða.
Kaupandi að miða eða gjafakorti hjá miðasölu Hörpu hefur 14 daga frá kaupum til þess að falla frá þeim og óska eftir endurgreiðslu hjá miðasölu Hörpu, séu fleiri en 14 dagar í viðburð. Þetta á við um öll miðakaup, hvort sem um er að ræða kaup af vef Hörpu/Tix eða í miðasölu. Þetta á aldrei við þegar minna en 14 dagar eru í viðburð.
Óski viðskiptavinur eftir því að falla frá kaupum á miða eða gjafakorti innan 14 daga frá kaupum er mikilvægt að senda tilkynningu í tölvupósti á midasala@harpa.is með nafni, netfangi, símanúmeri og upplýsingum um miðakaup. Ef skilyrði til endurgreiðslu eru uppfyllt þá eru miðakaupin endurgreidd innan 14 daga, með sama greiðslumiðli og notaður var við upphaflegu kaupin.
Í einstaka tilvikum er unnt að færa miða sem ekki falla undir endurgreiðsluskilmála á milli viðburða. Athugið að miðaverð getur verið ólíkt á milli tónleika og verðsvæða. Mismunur er ekki endurgreiddur.
Miðar greiddir með gjafakorti fást ekki endurgreiddir.
Almennt um gjafakort