Undirnefndir
Endurskoðunarnefnd
Stjórn Hörpu skipar á fyrsta fundi sínum að loknum aðalfundi ár hvert þrjá einstaklinga í endurskoðunarnefnd. Í nefndinni sitja nú einn aðili óháður félaginu og tveir fulltrúar stjórnar.
Aðalhlutverk endurskoðunarnefndar er mat á eftirlitsumhverfi félagsins, greining á virkni innri endurskoðunar, eftirlit með framkvæmd endurskoðunar, gerð tillögu um val á ytri endurskoðanda í samráði við Ríkisendurskoðun skv. 7. gr. laga nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreiknings, ásamt mati á óhæði endurskoðanda, mat á virkni áhættustefnu, áhættuvilja og áhættustýringu og tryggja fylgni við gildandi lög og reglur.
Meðal annarra verkefna nefndarinnar er að yfirfara fjárhagsupplýsingar og fyrirkomulag upplýsingagjafar frá stjórnendum og ytri endurskoðendum og að staðreyna að upplýsingar sem stjórnin fær um rekstur, stöðu og framtíðarhorfur félagsins séu áreiðanlegar og gefi sem gleggsta mynd af stöðu félagsins á hverjum tíma.
Í nefndinni sitja Hjörleifur Pálsson formaður, Árni Geir Pálsson og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir.
Dagskrárráð
Dagskrárráð Hörpu fundaði fjórum sinnum á árinu til þess að fjalla um erindi sem bárust eða hugmyndir sem komu fram á vettvangi ráðsins. Ráðið er skipað af stjórn Hörpu til tveggja ára í senn og er nú skipað Ásmundi Jónssyni, formanni, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Sóleyju Stefánsdóttur og Unnsteini Manúel Stefánssyni. María Huld kom inn á vormánuðum í stað Elísabetar Indru Ragnarsdóttur sem tók þá við starfi verkefnastjóra dagskrárgerðar í Hörpu. Verkefnastjóri dagskrárgerðar boðar til fundanna og leiðir þá og situr forstjóri Hörpu, Svanhildur Konráðsdóttur, einnig flesta fundina.
Dagskrárráðið hefur ráðgefandi hlutverk um val á þeim verkefnum sem Hörpustrengir standa á bak við og fær einnig kynningu og umfjöllun um eigin dagskrárgerð Hörpu og þau samfélagsverkefni sem Harpa tekur þátt í eða hefur frumkvæði að.