Hljóðhimnar eru upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur þeirra, staður til að uppgötva töfraheim hljóðs og tóna. Hljóðhimnar eru opnir á sama tíma og húsið og ókeypis aðgangur.
Hljóðhimnar eru forvitnileg, litrík og hlýleg umgjörð um undraheim hljóðs og tóna þar sem öll hönnun miðar að því að fræða í gegnum leik. Skipulag rýmisins er innblásið af eyranu og líffærafræðilegum formunum sem eru að finna í hlustinni, eins og t.d. kuðungnum.
Í Hljóðhimnum slær hjarta barnamenningar í Hörpu.
Hægt er að setja sig í stellingar hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hjúfra sig upp að vögguvísum og sönglögum Íslensku óperunnar, kíkja inn í músaholur eins og Maxímús Músíkús, sigla um tónlistarinnar höf með Tónstýri Stórsveitar Reykjavíkur og margt fleira.
Aðgangur að Hljóðhimnum er frír.
Vinsamlega athugið að á álagstímum getur reynst nauðsynlegt að koma á aðgangsstýringu í Hljóðhimnum. Þá er börnum ekki hleypt inn í rýmið nema í fylgd með fullorðnum. Hámarksfjöldi í einu er 30.
Hugmyndin og hönnunarferlið á bak við Hljóðhimna
Ein af afmælisgjöfunum á 10 ára afmæli Hörpu 2021 var hönnun á nýju rými sérstaklega hugsað fyrir börn og fjölskyldur. Sinfóníuhljómsveit Íslands, og Stórsveit Reykjavíkur, sem eiga sitt fasta aðsetur í Hörpu, og Íslenska óperan voru meðal þeirra sem lögðu sitt af mörkum til þess að skapa einstakt upplifunarferðalag um töfraheim hljóðs og tóna. Rýmið hlaut hið fallega nafn Hljóðhimnar og er staðsett á jarðhæð í Hörpu. Þverfaglega hönnunarteymið ÞYKJÓ leiddi hönnunarferlið í samstarfi við Hörpu, Gagarín, Vísindasmiðjuna, Reykjavík Audio, IRMA, fyrrnefnda íbúa hússins og síðast en ekki síst Krakkaráð ÞYKJÓ.
Krakkaráð ÞYKJÓ
Krakkaráð ÞYKJÓ er skipað 100 börnum á aldrinum 5–7 ára. Með krakkaráðinu var tryggt að börn kæmu að verkefninu og hefðu áhrif á hönnunarferlið. Um 100 börn á aldrinum 5-7 ára komu í smiðjur með hönnuðum ÞYKJÓ og vísindamönnum Vísindasmiðjunnar í Hörpu. Í smiðjunum var meðal annars leitað leiða til að miðla hljóðeðlisfræði, hvernig hljóðbylgjur hreyfa loftið og hvernig tónlist hreyfir við okkur. Hönnuðir hófu hugmyndaferlið á hugarflugi með krökkunum. Samstarfið og samtalið við börnin var grunnurinn sem hönnunarvinna ÞYKJÓ fyrir Hljóðhimna byggði á og í vinnuferlinu voru börn reglulega fengin að borðinu til að veita sitt sérfræðiálit.
Viðburðir framundan í Fjölskyldudagskrá Hörpu
Allir barna-og fjölskylduviðburðir í Hörpu