Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Jón Nordal - Fáheyrð tónlist

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.000 kr

Næsti viðburður

mánudagur 16. mars - 20:00

Salur

Norðurljós

CAPUT
Helga Bryndís Magnúsdóttir
Elísabet Waage
Guðni Franzson

Tónleikar helgaðir tónlist Jón Nordals, haldnir í tilefni þess að í mars eru liðin 100 ár frá fæðingu Jóns, eins merkasta tónskáld sem Ísland hefur alið. Hann var einnig frábær píanisti auk þess að stjórna Tónlistarskólanum í Reykjavík – m.a. á þeim árum sem eldri kynslóð Caput-hljóðfæraleikara nam við skólann. Hvort tveggja, tónlistin og skólastjórnin hafa markað djúp spor í íslensku tónlistarlífi.

Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur Píanókonsert Jóns frá árinu 1956. Hann frumflutti konsert sinn sjálfur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu. Þessi bráðskemmtilegi og glæsilegi konsert hefur örsjaldan verið fluttur. Á tónleikunum verða einnig flutt verkið Brotaspil sem hefur legið í þagnargildi í rúm 60 ár. Sinfóníuhljómsveitin frumflutti Brotaspil árið 1962 við afar dræmar undirtektir. Þetta er sennilega „módernískasta“ verk Jóns, týndur hlekkur í tónsköpun hans. Magnað verk sem er löngu tímabært að hljómi á ný. Bæði þessi verk hefur Haukur Tómasson útsett fyrir sinfóníettu - á sinn einstaka hátt en þó af fullri tryggð við frumtextann.

Jón Nordal samdi Næturljóð á hörpu fyrir Elísabetu Waage hörpuleikara fyrir útskriftartónleika hennar frá Tónlistarháskólanum í Haag árið 1987 og hún verður í einleikarahlutverkinu á þessum tónleikum. Helga Bryndís og Elísabet hafa leikið með Caput, nánast frá upphafi.

Efnisskrá
Brotaspil fyrir hljómsveit (Úts. H.T)
Næturljóð á Hörpu
Concerto per pianoforte e orchestra (Úts. H.T)

Stjórnandi: Guðni Franzson

CAPUT nýtur styrkja frá Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg

Almennt miðaverð er kr. 4000, en námsmönnum býðst að kaupa aðgöngumiðann á kr. 3000 í miðasölu Hörpu.

Viðburðahaldari

CAPUT

Miðaverð er sem hér segir

A

4.000 kr.

Dagskrá

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .