Ókeypis viðburður, Sýning

Event poster

Matar­mark­aður Íslands

Verð

0 kr

Tímabil

14. mars - 15. mars

Salur

Flói

Á Matarmarkaði Íslands koma saman bændur, sjómenn og smáframleiðendur af öllu landinu með fjölbreytt úrval matarhandverks. Framleiðendur standa vaktina, sýna og selja sínar vörur. Tilbúin að segja frá og svara fyrirspurnum um framleiðsluna - um alla ástríðuna að baki vörunni. Þar má finna allskonar sérvörur og er úrvalið breytilegt milli markaða. Sjón og smakk er sögu ríkara. Opið milli kl. 11:00 til kl. 17:00 og er aðgangur ókeypis. Gestum er bent á að hægt er að ganga inn bæði vinstra megin (Flói) og hægra megin ( Norðurbryggja) við afgreiðslu í Hörpu. Þá hvetjum við foreldra og forráðafólk barna og ungmenna að taka þau með sér til að upplifa matarmarkaði. Slow Food Ísland verður á staðnum með bingó fyrir fjölskyldur.

Facebooksíða Matarmarkur Íslands

Viðburðahaldari

Matarmarkaður Íslands

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

laugardagur 14. mars - 11:00

sunnudagur 15. mars - 11:00

Flói

Flói er glæsilegt opið rými á fyrstu hæð sem hentar vel fyrir móttökur, veisluhöld, markaði eða sem sýningarsvæði. Fallegt útsýni er úr Flóa yfir Esjuna, höfnina og miðborgina.

a large room filled with tables and chairs set up for a banquet .