Menningarnótt, Ókeypis, Rokk og popp, Tónleikar

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 22. ágúst - 16:00
Salur
Kaldalón
Söngvaskáldið Lyon Hansen, þungarokkhljómsveitin Tunghoyrt og Dania & Bartal koma fram í veglegri tónlistardagskrá í Kaldalóni á Menningarnótt. Dagskráin er í samstarfi við Sendiskrifstofu Færeyja á Íslandi sem hefur um árabil staðið fyrir fjölbreyttu tónleikahaldi á Menningarnótt í Hörpu þar sem margir af helstu tónlistarmönnum Færeyja hafa komið fram.
16:00 – 16:30
Lyon Hansen
Lyon Hansen hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð færeyskra þjóðlagatónlistarmanna. Hann hefur sent frá sér breiðskífurnar Lyon (2015) og Skull-Sized Kingdom (2025) auk nokkurra smáskífa. Lyon Hansen hefur hlotið mikið lof fyrir einlæga texta, næmar lagasmíðar og hljóðheim sem er hvort tveggja látlaus og áhrifamikill.
16:45 – 17:15
Tunghoyrt
Tónlist færeysku þungarokksveitarinnar Tunghoyrt er kraftmikil, tjáningarrík og grípandi en hljómsveitina skipa fjórir, kornungir Færeyingar. Hljómsveitin var stofnuð árið 2024 og sendi fyrr á þessu ári frá sína fyrstu
stuttskífu sem ber heitið ÓJÓ. Tunghoyrt skipa Bjarni Jakobsen, trommur, Erik Reynheim, bassi, Helge Greve á gítar og Jóni Strøm, söngur.
17:30 – 18:00
Dania og & Bartal
Tónlistarmennirnir og ljóðskáldin Dania O. Tausen og & Bartal koma fram saman í fyrsta sinn á Menningarnótt í Hörpu. Dania O. Tausen er margverðlaunuð og hefur hlotið mikið lof fyrir blæbrigðaríka og fíngerða tónlist sína sem og hráa og beinskeytta texta. Dania hefur sent frá sér tvær plötur, gonguteigatúnatos (2021) og ja/nei – og restin av vikuni (2023), en sú síðarnefnda var valin plata ársins á færeysku tónlistarverðlaununum 2023. Hún hefur komið víða fram, hitað upp fyrir Eivør Pálsdóttur og farið í tónleikaferð með íslensku hljómsveitinni Supersport.& Bartal er gítarleikari, lagahöfundur og skáld sem fer ótroðnar slóðir í tónlist sinni. Undanfarin ár hefur & Bartal haslað sér völl sem sólólistamaður í færeysku tónlistarlífi og vinnur nú að nýju efni sem lítur dagsins ljós á næstunni.Á tónleikunum í Hörpu flytja Dania og & Bartal lög úr smiðju beggja.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 22. ágúst - 16:00
Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu