Jazz og blús, Ókeypis viðburður, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 30. apríl - 12:30
Salur
Hörpuhorn
Jazzklúbburinn Múlinn fagnar Alþjóðlega jazzdeginum ásamt fjölda tónlistarfólks á tónleikum um heim allan.
UNESCO útnefndi þennan tiltekna dag, 30. apríl sem hinn opinbera dag jazzins árið 2011 og fagnar því að þessu sinni 15 ára afmæli sínu. Mottó dagsins er að jazztónlist getur í sínum mörgu og fjölbreyttu myndum verið tákn sameiningar fyrir fólk af ólíkum uppruna og frá öllum heimshornum sem hlustendur og/eða virkir þátttakendur.
Í tilefni dagsins verður Múlinn með uppákomu í Hörpu kl. 12:30 þar sem hljómsveitin Hnokkar mun koma fram og skemmta gestum hússins.
Hnokkana skipa þrír blásarar, Snorri Sigurðarson sem leikur á trompet, saxófónleikaranir Haukur Gröndal og Ólafur Jónsson og slagverksleikari, Erik Qvick og eru þeir sannkallaðir gleðigjafar. Tónlist þeirra er innblásin af jazztónlist frá New Orleans, full af fjöri og lífsþrótti.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
fimmtudagur 30. apríl - 12:30
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu