Kór, Ókeypis viðburður

Verð
0 kr
Næsti viðburður
föstudagur 1. maí - 15:30
Salur
Hörpuhorn
Laufáskórinn kemur fram í Hörpuhorni, föstudaginn 1. maí kl. 15:30 - 16:00. Efnisskráin hefur að geyma tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, Emil Thoroddsen, Hauk Tómasson, Jórunni Viðar, Valgeir Guðjónsson og fleiri. Stjórnandi kórsins er Agnes Jórunn Andrésdóttir. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl og 1. og 3. maí.
-
Laufáskórinn var stofnaður í ágúst 2022 að Laufásvegi í Þingholtunum í Reykjavík, en þaðan dregur kórinn nafn sitt. Kórstjóri og stofnandi er Agnes Jórunn Andrésdóttir en hún hefur lokið kórstjóraprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar ásamt því að stunda söng- og hljóðfæranám frá unga aldri. Laufáskórinn er fyrsti kórinn sem Agnes stofnaði og með því byrjaði ferill hennar sem kórstjóri. Haustið 2024 kom kórinn fram á tónleikum með Yo-Yo Ma ásamt fleiri kórum í Hörpu. Einnig hélt kórinn eftirminnilega Hrekkjavökutónleika í Langholtskirkju í október 2024. Laufáskórinn frumflytur reglulega kórverk eftir kórmeðlimi. Kórinn samanstendur af söngunnendum úr ýmsum áttum sem öll eiga það sameiginlegt að njóta þess að syngja í skemmtilegum hópi.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
föstudagur 1. maí - 15:30
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu