Börn og Fjölskyldan, Kór

Event poster

Kór Hörðu­valla­skóla syngur í Hörpu­horni

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 25. apríl - 14:30

Salur

Hörpuhorn

Kór Hörðuvallaskóla syngur í Hörpuhorni laugardaginn 25. apríl, kl. 14:30 - 15:00. Stjórnandi er Ása Valgerður Sigurðardóttir og með kórnum koma fram Bjarmi Hreinsson á píanó og Valgeir Daði Einarsson á gítar.

Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl og 1. og 3. maí.


-

Kór Hörðuvallaskóla er 5 ára í ár og er staðsettur í efri byggð Kópavogs. Kórmeðlimir eru á aldrinum 8 - 13 ára og árlega æfa um eða yfir 50 börn með kórnum. Fyrir utan söng á skólaskemmtunum þá syngur kórinn við fjölbreytt tækifæri utan skóla s.s. á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar og árlegum tónleikum á Barnamenningarhátíð í Kópavogi. Á 70 ára afmæli Kópavogs haustið 2023 frumfluttu barnakórar Kópavogs safn nýrra verka eftir íslensk tónskáld í Salnum.

Kórinn tekur jafnan þátt í Landsmótum íslenskra barnakóra sem haldin eru á vegum Tónmenntakennarafélags Íslands, nú síðast í Kópavogi vorið 2023 og þar áður á Hvolsvelli haustið 2024. Kór Hörðuvallaskóla hlakkar til að endurnýja kynnin við Hörpu með nýja kórmeðlimi innanborðs. Það er dýrmæt menningarupplifun að fá tækifæri til að syngja í þessu glæsilega tónlistarhúsi. Kór Hörðuvallaskóla færir FÍK/Félagi íslenskra kórstjóra kærar þakkir fyrir framtakið.




Viðburðahaldari

Harpa

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

laugardagur 25. apríl - 14:30

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .