Kammertónlist, Rising Stars, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
5.000 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 10. maí - 17:00
Salur
Norðurljós
Að læra til að aflæra (Learn to unlearn) er tónleikayfirskrift austurríska sellóleikarans Valérie Fritz í tónleikaröðinni ECHO Rising Stars í Hörpu.
Í gegnum litrík og ólík einleiksverk fyrir sellóið verður til þráður eða frásögn sem hverfist um samband sellóleikarans við hljóðfærið sitt. Hreyfingar, lýsing, söngur, myndlist og dans gegna hlutverki í mörgum verkanna og hljóðheimur sellósins er þaninn til hins ýtrasta.
Tónverkin spanna allt frá miðöldum og til okkar tíma en á efnisskrá er meðal annars glænýtt tónverk úr smiðju írska tónskáldsins Jennifer Walshe sem er eitt eftirsóttasta tónskáld samtímans.The Sheer Task of Being Alive (2025) fyrir selló og rödd er samið sérstaklega fyrir Valérie Fritz, þar sem hreyfingar geimfara í þyngdarleysi verða að yrkisefni. Einnig hljóma sígild einleiksverk fyrir selló úr smiðjum Bachs og Brittens og nýstárleg og áhugaverð verk svo sem eftir George Crumb, Peter Eötvos og Georges Aperghis.
Valerie Fritz hefur vakið eftirtekt fyrir frjótt verkefnaval, afar persónulega nálgun við hljóðfærið sitt og framúrskarandi sellóleik. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur fram á tónleikum á Íslandi.
EFNISSKRÁ
Georges Aperghis (1945)
II. Récitation Quatre úr Quatre Récitations fyrir einleiksselló (1980)
Johann Sebastian Bach (1685 - 1750)
Prélude + Courante úr Svítu númer 2 BWV 1008 (1717 - 1723) fyrir einleiksselló
Jennifer Walshe (1974)
THE SHEER TASK OF BEING ALIVE (2025) fyrir einleiksselló og söngrödd
Benjamin Britten (1913 - 1976)
Lento (introduzione) úr Svítu nr. 3 fyrir einleiksselló (1971)
George Crumb (1929 - 2022)
Toccata úr Sónötu fyrir einleiksselló (1955)
Valérie Fritz (1997)
Additional value (2025) fyrir sellóboga og lifandi rafhljóð
Peter Eötvös (1944 - 2024)
Two poems to Polly (1998) fyrir talandi sellóleikara
Birgitta von Schweden (1303- 1373)
Latuit fyrir selló með rafhljóðum
Útsetning eftir Josef Haller
Michael Gordon (1956)
Industry (1993) fyrir uppmagnað selló með rafhljóðum
Austurríski sellóleikarinn Valérie Fritz (f.1997) hefur hefur komið fram sem einleikari og með kammerhópum á tónlistarhátíðum svo sem á Musikfest í Berlín, Salzburg Festival og Klangspuren Schwaz og leikið með hljómsveitum svo sem Deutsches Symphonie-Orchester í Berlín. Hún hefur starfað náið með tónskáldum á borð við Georg Friedrich Haas og Jennifer Walshe og hefur hljóðritað sína fyrstu plötu sem hefur að geyma verk eftir York Höller, Claude Debussy og Rebeccu Clarke. Hún stundaði háskólanám við Mozarteum háskólann í Salzburg hjá Clemens Hagen og Giovanni Ghnocchi.
Valérie Fritz er tilnefnd sem ECHO Rising Stars listamaður af Elbphilharmonie í Hamborg, Bozar í Brussel, Casa da Música í Porto, Kölner Philharmonie í Köln, Konzerthaus Dortmund og Musikverein Wien í Vínarborg.
-
Jennifer Walshe er írskt tónskáld og raddlistakona, fædd í Dublin árið 1974. Hún þykir eitt áhugaverðasta tónskáld samtímans en verk hennar hafa verið flutt um heim allan af ótal tónlistarhópum og hljómsveitum. Hún kemur fram sem raddlistakona og spunatónlistarmaður og hefur starfað með listafólki svo sem Tony Konrad, George Lewis og Roscoe Mitchell svo örfá séu nefnd.
--
Um verkið The Sheer Task of Being Alive, samið sérstaklega fyrir Valérie Fritz í tilefni af ECHO Rising Stars skrifar JW eftirfarandi:
The Sheer Task of Being Alive er pantað af Elbphilharmonie í Hamborg, Bozar í Brussel, Casa da Músíca í Porto, Fílharmóníunni í Köln, Konzerthaus í Dortmund, Musikverein í Vínarborg og ECHO.
The Sheer Task of Being Alive er fyrir selló en flytjandinn notar einnig rödd og líkama. Verkið skal vera uppmagnað og sellóleikarinn helst með hljóðnema á spöng (headset) til að raddhljóð náist sem best. Raddhljóðin eru viðkvæm og innhverf, flytjandinn svífur um í innra muldri geimfara sem flýtur um í þyngdarleysi inni í geimfari.
Þetta verk er hluti af tónverkaröð sem hverfist um Mars og geiminn. Upphafslínurnar eru fengnar úr ummælum frá talsmanni NASA við geimskot Perseverance-flaugarinnar til Mars, 30. júlí 2020. Æskilegt er að flytjandinn sé ekki í skóm þegar verkið er flutt, geimfarar sinna vinnu sinni um borð í geimskipum mestmegnis á sokkaleistunum.“
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
5.000 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Næstu viðburðir í Hörpu