Ókeypis viðburður, Tónlist

Verð
0 kr
Tímabil
5. nóvember - 12. nóvember
Salur
Hörpuhorn
Söngnemendur við tónlistardeild Listaháskóla Íslands gleðja gesti með ljúfum hádegistónum í tónleikaröðinni Gleym mér ei sem fer að þessu sinni fram í samstarfi við Hörpu.
Tónleikarnir eru fernir talsins og fara allir fram á miðvikudögum kl. 12, í einstökum hljómi Hörpuhorns í Hörpu.
Efnisskráin fléttast í kringum fjölbreytt viðfangsefni hverju sinni, ást og hamingju, sársauka og sorgir. Meðleikur er í höndum Matthildar Önnu Gísladóttur, píanóleikara.
Á lokatónleikum Gleym mér ei sameinast nemendur söng- og hljóðfæradeildar LHÍ og flytja íslensk sönglög úr smiðju tónskáldsins Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!
Gleym mér ei | Hádegistónleikar söngdeildar LHÍ haustið 2026
Miðvikudaginn 8. október kl. 12:00 - 12:40
Úr ýmsum áttum
Miðvikudaginn 22. októberkl. 12:00 - 12:40
Óperur og söngleikir
Miðvikudaginn 5. nóvember kl. 12:00 - 12:40
Sjúkdómar og sársauki
Miðvikudaginn 12. nóvember kl. 12:00 - 12:40
Sönglög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson (1847 - 1927)
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
0 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 5. nóvember - 12:00
miðvikudagur 12. nóvember - 12:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn