18. febrúar 2026
Víkingur og Kurtág í beinni frá Búdapest
György Kurtág, eitt þekktasta og áhrifamesta tónskáld samtímans, fagnar aldarafmæli sínu fimmtudaginn 19. febrúar en af því tilefni fara fram glæsilegir afmælistónleikar í Müpa, tónlistarhúsinu í Búdapest þar sem Kurtág verður heiðraður.

Aðaleinleikari kvöldsins verður Víkingur Heiðar Ólafsson, sem flytur úrval einleiksverka eftir Kurtág. Þar á meðal hljóma undurfallegar píanóúsetningar Kurtágs fyrir píanódúett á verkum J. S. Bach en þar mun Halla Oddný Magnúsdóttir koma fram ásamt Víkingi. Aðrir flytjendur eru Csaba Klenyán, klarinettuleikari, Máté Szűcs, víóluleikari, Pablo Márquez, gítarleikari, Dónár-hljómsveitin og Markus Stenz, hljómsveitarstjóri. Hér má finna nánari efnisskrá þessarar glæsilegu tónlistarveislu.
Tónleikar í beinu streymi
Mikill alþjóðlegur áhugi er á tónleikunum og verða þeir sendir beint út frá vef Müpa-tónlistarhússins. Einungis verður hægt að horfa á tónleikana í beinu streymi en útsending hefst í kringum 18:20 á íslenskum tíma. Slóð á útsendinguna er að finna hér.
Einnig mun Rás 1 senda beint út frá fyrri hluta tónleikanna og má nálgast útsendinguna hér. Tónleikunum verður svo útvarpað í heild sinni á Rás 1 sunnudaginn 22. febrúar kl. 16:05.
Müpa er aðili að Samtökum tónlistarhúsa í Evrópu (ECHO) ásamt 23 tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu en Harpa er einmitt í þeim hópi.