24. ágúst 2026

Harpa iðaði af lífi á Menningarnótt

Hvorki rigning né rok náðu að halda aftur af Menningarnæturgestum þegar Harpa bauð heim í tilefni 15 ára afmælisins. Mörgþúsund gestir lögðu leið sína í Hörpu og á Hörputorg þar sem tónlist, dans, sköpun og alls kyns uppákomur tóku við hver af annarri frá hádegi og fram á kvöld.

A performer on stilts with flowing red, pink, and purple fabric against a modern glass building.

Nýafstaðinn sólmyrkvi var innblástur nokkurra viðburða yfir daginn. Í Norðurljósum fóru fram Sólmyrkvaleikar. Krakkakór og krakkahljómsveit ÞYKJÓ í fylgd fullorðinna fylgifiska fluttu glæný lög og ljóð eftir hundruð barna frá gervöllum Vestfjörðum. Ingibjörg Fríða veiddi góss úr þjóðsögukistunni sinni og ÞYKJÓ töfraði fram galdraheim. Í Eldborg buðu Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stjörnu-Sævar gestum í ferðalag til sólar og tungls fyrir fullu húsi.

Conductor in a plaid blazer and glasses on stage with an orchestra.

Á Hörputorgi létu gestir rigninguna lítið á sig fá. Sívinsæl bátasmiðja Memmm var á sínum stað og Brumm Brumm mætti á húsbílnum með farandprentsmiðjuna sína. Þar var meðal annars boðið upp á Prent á krakka þar sem myndir voru silkiprentaðar beint á húð líkt og tímabundin húðflúr.

A bearded man in a fur hat, sunglasses, and a snowflake sweater sings into a microphone, surrounded by musicians in red rain ponchos and some in green uniforms.

Hinn árlegi lúðrasveitabardagi var stærri og fjörugri en nokkru sinni fyrr. Svifist var einskis til þess að múta dómnefndinni, sveitirnar lögðu allt undir og Mugison birtist sem leynigestur og söng með Lúðrasveit Reykjavíkur. Hvorki Lúðrasveit Reykjavíkur né Lúðrasveitin Svanurinn náðu þó að tryggja sér sigurinn að þessu sinni. Lúðrasveit verkalýðsins stóð uppi sem sigurvegari og tók við hinum eftirsótta sigurskildi.

A laughing woman in sunglasses holds a green umbrella while sitting at a table in the rain.

Fjörið hélt áfram um allt hús. Barrio 27 fyllti Flóa af salsatónlist og dansi, Gleðisveitin Hnokkar og Sveiflustöðin sköpuðu sannkallaða karnivalstemningu í opnum rýmum Hörpu og Maximús trítlaði um húsið og tók meira að segja nokkur dansspor með Ingu Maren í Dans dans dans.

Four children in yellow crowns sit in large hexagonal windows overlooking a harbor.

Mitt í öllu fjörinu var hægt að hvíla sig frá amstri dagsins. Gestir gátu hreiðrað um sig í skynrými ÞYKJÓ, skapað afmæliskórónur í tilefni 15 ára afmælis Hörpu eða nýtt tækifærið og heimsótt sýninguna Heim íslenskrar tónlistar þar sem frír aðgangur var hluta dagsins.

Hip-hop dancers perform in a modern building with a geometric glass wall, watched by an audience.
Six dancers in white shirts and dark pants perform in a modern, multi-level building for a crowd.

Ein af stærstu stundum dagsins var þegar Ragnheiður Gröndal og Karlakórinn Fóstbræður leiddu einn magnaðasta samsöng sem ómað hefur um Hörpu. Gestir fylltu alrými hússins af söng og gleði pg óhætt er að segja að Harpa hafi sannarlega verið látin hljóma.

A choir performs on a large staircase in a modern building with a hexagonal glass facade, watched by a crowd on multiple levels.

Harpa þakkar öllum gestum, listafólki og samstarfsaðilum sem tóku þátt í að gera Menningarnótt og 15 ára afmælisfögnuð Hörpu eftirminnilegan.

Fréttir