26. júní 2026

Tónleikar með næstu kynslóð íslensks tónlistarfólks

Nýjar raddir, ferskar hugmyndir og framúrskarandi tónlistarfólk sem snýr heim eftir framhaldsnám erlendis. Tónleikaröðin Velkomin heim snýr aftur í Hörpu í júlí og býður gestum að kynnast efnilegu tónlistarfólki sem hafa skapað sér dýrmæta reynslu erlendis og stíga nú á svið í Hörpu.

A blonde woman with blue eyes, red lipstick, and a dark turtleneck looks seriously at the viewer against a black background.

Tónleikaröðin Velkomin heim verður haldin í níunda sinn sumarið 2026.
Um er að ræða samstarfsverkefni Hörpu og FÍT, klassískrar deildar FÍH, sem hefur verið fastur liður í sumardagskrá Hörpu frá árinu 2018. Markmið verkefnisins er að styðja við ungt tónlistarfólk á mikilvægum tímamótum á ferlinum og veita því vettvang til að kynna sig í helsta tónlistarhúsi landsins.

Tónleikarnir munu fara fram í Hörpuhorni á sunnudögum í júlí og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem klassísk tónlist, jazz og nýsköpun mætast.

Tónleikaröðin hefst sunnudaginn 5. júlí með tenórsöngvaranum Gunnlaugi Bjarnasyni sem hefur vakið athygli fyrir glæsilegan feril erlendis. Því næst tekur jazzpíanóleikarinn Benjamín Gísli Einarsson við með persónulega og kraftmikla efnisskrá sunnudaginn 12. júlí.

Þann 19. júlí stígur svo hljóð- og tónlistarkonan Asalaus (Ása Anna Ólafsdóttir) á svið með eigin tónlist þar sem rafhljóð og óhefðbundnir hljóðheimar skapa einstaka upplifun. Tónleikaröðinni lýkur sunnudaginn 26. júlí þegar sópransöngkonan María Sól Ingólfsdóttir mun heilla með kraftmikilli rödd sinni og töfrandi framkomu.

Frír aðgangur er á alla tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin í Hörpuhorn í júlí.

Dagskrá Velkomin heim í júlí:

5.júlí: Gunnlaugur Bjarnason, tenórsöngvari.

12.júlí: Benjamín Gísli Einarsson, jazzpíanóleikari.

19.júlí: Ása Önnu Ólafsdóttir, rafgítarleikari og tónskáld.

26.júlí: María Sól Ingólfsdóttir, sópransöngkona.

Frekari upplýsingar

Fréttir