31. mars 2026

Tónlist Nai Barghouti brúar bilið milli austurs og vesturs

A curly-haired singer named Nai Barghouti performs on a dark stage with violinists, a drummer, and a pianist.

Rödd Nai Barghouti hefur verið lýst sem bæði djúpri og vonarfullri — rödd sem ber með sér sorg, fegurð og kraft. Í þessum viðtölum deila Marína Ósk, Alexandra Kjeld, Ásgeir Ásgeirsson og Amel Barich sínum hugleiðingum um tónlist hennar og þau áhrif sem hún hefur á hlustendur.

Tónlist Nai byggir á einstökum samruna þar sem arabískar hefðir og jazz mætast, ásamt áhrifum úr klassískri tónlist og samtímanum. Útkoman er persónuleg og tjáningarrík nálgun sem nær að skapa sterka tengingu við áheyrendur.

Horfðu á viðtölin hér að neðan og fáðu innsýn í það hvernig tónlist Nai snertir fólk á ólíkan hátt.

Á tónleikum í Hörpu kemur Nai fram ásamt fjölþjóðlegri hljómsveit sinni og flytur fjölbreytta efnisskrá þar sem arabískar tónlistarperlur, afrísk-amerískur jazz og evrópsk klassík fléttast saman við frumsamda tónlist hennar sjálfrar.

Hver er tónlistarkonan Nai Bargouti?

Fréttir