14. janúar 2026
Tæknin á bak við upplifunina í Hörpu
Í tilefni af Bransadeginum kíkjum við á bak við tjöldin í Hörpu og kynnum nokkra starfsmenn sem vinna í fremstu röð tæknibransans.

Bransadagurinn fór fram í gær og var þetta þriðja árið sem fagfólk í hljóð-, ljósa- og myndlausnum, sviðstækni, kvikmynda- og sjónvarpsgerð á Íslandi kemur saman. Að deginum standa Harpa, Rafmennt og Skerpa – Félag tæknifólks, ásamt samstarfsaðilum.
Í Hörpu starfar eitt öflugasta tækniteymi landsins við að tryggja að tónleikar, ráðstefnur og viðburðir standist alþjóðlegan samanburð. Tæknin er ekki aukaatriði heldur lykilþáttur í upplifun gesta – frá fyrsta tóni til síðasta ljóss.
Tæknifólk Hörpu býr yfir víðtækri reynslu af stórum alþjóðlegum viðburðum, beinum útsendingum og flóknum tónleikauppsetningum. Teymið vinnur náið með listafólki, skipuleggjendum og framleiðendum til að tryggja hnökralausa framkvæmd þar sem gæði, öryggi og nákvæmni skipta öllu máli.
„Í Hörpu er tæknin ekki bara tæki heldur hluti af sköpuninni. Metnaðurinn er að hver viðburður standist alþjóðlegan samanburð.“
— Andri Guðmundsson, framkvæmdastjóri tækni- og viðburðasviðs Hörpu.

Túrar með Of Monsters and Men
Finnur Ragnarsson hefur starfað sem verkefnastjóri og hljóðmaður í Hörpu í tæp fimm ár og býr yfir áratuga langri reynslu úr viðburða- og tæknibransanum, bæði hérlendis og erlendis. Á ferlinum hefur hann unnið með fjölda þekktra listamanna, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Placebo og Blonde Redhead, og túrar þessa dagana með Of Monsters and Men, samhliða starfi sínu hjá Hörpu.
Meðal stærstu verkefna Finns í Hörpu eru Leiðtogafundur Evrópuráðsins 2023 og Verðlaunahátíð Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2022, tveir af umfangsmestu viðburðum sem haldnir hafa verið hér á landi, með milljónum áhorfenda um allan heim.
„Mér finnst sérstaklega gefandi að vinna með tónlistarfólki sem er að spila í Hörpu í fyrsta sinn – sjá eftirvæntinguna fyrir tónleika og ánægjuna þegar þeim lýkur. Það er líka alltaf áskorun og ánægja að láta tæknilegar lausnir styðja listrænar hugmyndir.“
— Finnur Ragnarsson, verkefnastjóri og hljóðmaður í Hörpu

Stærsti sölupunkturinn við að vinna í Hörpu er fólkið
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm er verkefnastjóri í Hörpu og hefur verið í viðburðahaldi í ýmsum myndum síðan 2019. Í janúar varð eitt ár síðan hún hóf störf í Hörpu, þar sem hún kemur að fjölbreyttum viðburðum og flóknum verkefnum sem krefjast sveigjanleika og skipulagshæfni.
Áhuginn á Hörpu kviknaði eftir að hún hafði sjálf sótt fjölda ólíkra viðburða í húsinu. Að fá tækifæri til að taka þátt í framkvæmdinni og upplifa það að „láta hjólin snúast“ var næsta skref.
Meðal verkefna sem standa upp úr á fyrsta árinu nefnir Hreindís Menningarnótt sem ákveðinn hápunkt. Þá fóru fram hátt í 40 viðburðir víðs vegar um húsið, bæði inni og úti, sem hún bar ábyrgð á og verkefnastýrði, auk útskriftarsýningar fatahönnunardeildar LHÍ, sem hún lýsir sem skemmtilega frábrugðinni því sem hún er vön að vinna við.
„Stærsti sölupunkturinn við að vinna í Hörpu er fólkið. Hér vinnur ótrúlega hæft og fjölbreytt teymi og maður er stöðugt að læra eitthvað nýtt. Fyrir utan það að skemmtilegasta fólk í heimi vinnur hér.“
— Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, verkefnastjóri í Hörpu

Það eru forréttindi að vinna í jafn flottu húsi og Harpa er
Birgir Rafn Snorrason hefur starfað í tæknibransanum síðan um 2006. Ferillinn hófst á Akureyri samhliða námi í rafvirkjun, þar sem áhugi á hljóð- og viðburðatækni kviknaði í öflugu félagslífi skólans. Fljótlega færðist fókusinn alfarið yfir í tæknimál og viðburðahald.
Áður en Birgir hóf störf í Hörpu árið 2019 starfaði hann um árabil við tæknimál hjá Icelandair Hótelum, meðal annars sem tæknistjóri á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem hann hlaut viðurnefnið „Biggi Hilton“.
Aðspurður um skemmtilegasta verkefnið í Hörpu nefnir Birgir Leiðtogafund Evrópuráðsins 2023. Verkefnið var umfangsmikið og flókið, en að hans mati skýrt dæmi um styrk og samheldni íslensks tæknifólks þegar mikið liggur við.
„Það eru forréttindi að vinna í jafn flottu húsi og Harpa er. Að starfa í lifandi listaverki með heimsklassa starfsfólki er eitthvað sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut. Liðsheildin er sterk, verkefnin fjölbreytt og samvinnan mikil – og útsýnið skemmir heldur ekki fyrir.“

Til þeirra sem hafa áhuga á að starfa í tæknibransanum er ráð Birgis einfalt: láta vaða. Tækifærin séu fjölmörg, þekking deild og nú séu til öflug námsúrræði og námskeið sem auðveldi fólki að feta sig inn í greinina.