12. febrúar 2026

Heimur íslenskrar tónlistar opnar í Hörpu

Upplifunarsýningin Heimur íslenskrar tónlistar / The World of Icelandic Music opnar við aðalinngang Hörpu í maí næstkomandi. Þar verða gestir leiddir í gegnum heim íslenskrar tónlistar frá landnámi til dagsins í dag með einstakri hljóðleiðsögn.

Five smiling individuals, three men and two women, stand together in a building with a geometric glass wall.

Markmið sýningarinnar er að skapa vettvang þar sem velt er upp spurningum um hvaða öfl hafa mótað íslenskt tónlistarlíf í tímans rás. Þar er sjónum beint að náttúruöflum, kristnitökunni, hernáminu, tækninýjungum og áhrifavöldum, og hvernig þessir þættir gætu hafa mótað listafólk á borð við Björk, Laufey, Sigur Rós, Kaleo, Bubba Morthens, Víking Heiðar Ólafsson og Kristján Jóhannsson og fleiri, sem hafa sett mark sitt á íslenskt tónlistarlandslag.

„Ísland hefur alið af sér heimsklassa listafólk í öllum stefnum og straumum tónlistar, það er því spennandi að rýna í hvaðan áhrifin á tónlistarmenninguna koma og hvort finna megi einhver sér íslensk höfundareinkenni. Slík sýning á hvergi betur heima en í Hörpu,“ segir Axel Hallkell Jóhannesson, einnig þekktur sem Langi Seli, frumkvöðull og hönnuður sýningarinnar ásamt athafnamanninum Þorsteini Jóhannessyni.

Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn og tónskáldið Úlfur Eldjárn eru listasmiðir hljóðleiðsagnarinnar. Þar fléttast saman einstök frásagnarlist Þórarins, frumsamin tónlist og töfrandi hljóðheimur Úlfs með tóndæmum úr íslenskri tónlistarsögu við grípandi leikmynd Axels Hallkells í ferðalagi um stórbrotna menningarsögu þjóðarinnar.

„Sýningin Heimur íslenskrar tónlistar er einstök því hún varpar ljósi á rætur og þróun tónlistar hér á landi og ekki síður á þá einstaklinga og lykilstofnanir sem hafa leikið stór hlutverk við að móta tónlistararfinn í aldanna rás. Það er því bæði viðeigandi og mikið fagnaðarefni að tónlistarhús þjóðarinnar sé vettvangurinn til að miðla þessari merkilegu sögu sem ég er sannfærð um að gestir á öllum aldri hafi bæði gagn og gaman af,“ er haft eftir Svanhildi Konráðsdóttur, forstjóra Hörpu.

Fréttir