Mannamót
Ráðstefna, markaður eða málþing? Rými af öllum stærðum - fyrir öll tilefni.
Hleður
Upprásin /
2026 - 2027
Upprásin snýr aftur í Hörpu í september og með henni hefst nýtt starfsár fullt af ferskri tónlist og spennandi uppgötvunum.
Tónleikaröðin skapar ungu og upprennandi tónlistarfólki vettvang til að stíga á svið í Hörpu og gefur gestum tækifæri til að kynnast nýjum röddum í íslensku tónlistarlífi. Þrjár hljómsveitir eða tónlistaratriði koma fram hvert kvöld og spannar dagskráin ólíkar tónlistarstefnur og strauma.
Upprásin er samstarfsverkefni Hörpu, Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og Rásar 2 og hefur á undanförnum árum skapað sér fastan sess í dagskrá Hörpu.
Fyrstu tónleikar vetrarins fara fram í september – komdu og uppgötvaðu tónlistarfólkið sem gæti verið næst til að láta að sér kveða.
Skoðaðu dagskrá Upprásarinnar hér
Upprásin

Veitingastaðir og verslun
Fréttir /
Allt það nýjasta

