Mannauður

A group of people standing on a modern staircase inside a building with a hexagonal glass wall and a mirrored ceiling.

Markmið Hörpu er að vera eftirsóttur vinnustaður og fyrsti valkostur þeirra sem vilja starfa í faglegu, skapandi og menningartengdu umhverfi. Markmiðið er jafnframt að gæði viðburða, þjónustu og upplifunar þeirra sem nýta þjónustu hússins sé ávallt á heimsmælikvarða með því að hafa besta fagfólkið á sínu sviði innanborðs.

Ávallt á heims­mæli­kvarða

Hjá Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi starfar rúmlega 90 manna samhentur og metnaðarfullur hópur í skapandi og skemmtilegu starfsumhverfi. Harpa leggur ríka áherslu á sjálfbærni og hefur mótað sér mannréttinda- og jafnréttisstefnu, hefur hlotið jafnlaunavottun og viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024. Harpa er Svansvottað ráðstefnuhús og hefur uppfyllt öll Græn skref Umhverfisstofnunar um rekstur.

a group of people are posing for a picture on a set of stairs