

Upplifðu heim íslenskrar tónlistar frá landnámi til heimsfrægðar
Ferðalag um sögu íslenskrar tónlistar
Hvað hefur mótað íslenska tónlist í gegnum aldirnar? Heimur íslenskrar tónlistar er sýning sem leiðir þig í ferðalag um sögu og þróun íslenskrar tónlistar frá landnámi til dagsins í dag. Sýningin varpar ljósi á hvernig náttúra, sagan og samfélagsbreytingar hafa sett mark sitt á tónlist þjóðarinnar.
Með hljóðleiðsögn lifnar tónlistarsagan við í gegnum frásögn, frumsamda tónlist, myndræna miðlun og gagnvirkni, ásamt tóndæmum úr ríkulegum tónlistararfi Íslendinga, sem hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana.
Axel Hallkell Jóhannesson er aðalhönnuður sýningarinnar, Þórarinn Eldjárn skrifaði texta hljóðleiðsagnar sem lesinn er af Þorvaldi Davíð Kristjánssyni leikara, og tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn samdi hljóðheim sýningarinnar.
Opið alla daga kl. 10:00–19:00
Íslenska hljóðleiðsögnin tekur um 45 - 60 mínútur.
Kaupa miða