Tónlistarhús gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og skapa menningarleg, efnahagsleg og samfélagsleg verðmæti. Harpa er stoltur aðili að Samtökum evrópskra tónlistarhúsa, European Concert Hall Organization (ECHO).
Um ECHO
Tónlistarhúsin í ECHO eru mismunandi í rekstri og listrænum áherslum en sameinast í því að leggja metnað í að kynna listviðburði í hæsta gæðaflokki fyrir sem fjölbreyttustum hópum gesta. Aðildarhús ECHO styðja hvert annað með því að deila reynslu og þekkingu og koma af stað metnaðarfullum alþjóðlegum sameiginlegum verkefnum. Lögð er rík áhersla á tengsl við listafólk, áhorfendur og samfélagið.
Sópransöngkonan, tónskáldið og sjónlistakonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir hefur verið valin til þátttöku í Rising Stars verkefninu á vegum ECHO fyrir veturinn 2025-2026.
ECHO hefur um árabil staðið fyrir verkefninu Rising Stars þar sem framúrskarandi tónlistarfólk er valið til að koma fram í mörgum af bestu tónlistarhúsum Evrópu. Harpa tilnefndi Álfheiði og er tilnefningin liður í dagskrárstefnu Hörpu, en eingöngu sex tónlistarmenn völdust til þátttöku í verkefninu fyrir árið 2025-2026. Það er því sérstakt gleðiefni og viðurkenning að Álfheiður Erla sé ein þeirra semfær tækifæri til þess að vera hluti af þessum mikilvæga evrópska tónlistarvettvangi.
Auk Álfheiðar munu fleiri rísandi stjörnur úr þessum hópi koma fram á tónleikum í Hörpu á komandi misserum.
Rising Stars hófst árið 1995 en tilgangur þess er að styðja við ungt og framúrskarandi tónlistarfólk. Frá upphafi hafa 150 rísandi stjörnur orðið fyrir valinu og hefur verkefnið reynst afar dýrmætur stökkpallur fyrir alþjóðlegan tónlistarferil viðkomandi. Meðal þeirra sem hafa notið þátttökunnar í Rising Stars við að þróa tónlistarferil sinn og eru nú heimsþekktir listamenn. Má þar m.a. nefna sellóleikarann Kian Soltani, píanóleikarann Khatia Buniatishvili og fiðluleikarann Janine Jansen sem öll hafa komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu.
Sópransöng- og sjónlistakonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2021 sem söngkona ársins í flokknum sígild og samtímatónlist auk þess að vera valin í 16 manna úrslit BBC Cardiff söngkeppninnar sama ár. Hún hefur verið fastráðin við Theater Basel í Sviss frá haustinu 2021 og farið þar með ýmis burðarhlutverk. Nýlega kom út platan Poems hjá Deutsche Grammophone, en platan inniheldur verk sem Álfheiður söng og samdi ásamt tónskáldinu Viktori Orra Árnasyni við ljóð ýmissa íslenskra ljóðskálda. Árið 2022 sá Álfheiður um listræna stjórn og söng á viðburðinum Apparition ásamt píanóleikaranum Kunal Lahiry í Eldborgarsal Hörpu, þar sem tónlist, dans og sjónlist eftir Álfheiði tvinnuðust saman, en viðburðurinn var tilnefndur sem tónlistarviðburður ársins á íslensku tónlistarverðlaununum árið 2023.
ECHO samtökin og þar með talin Harpa hafa hlotið Shift Culture umhverfisvottun.
Listir og menning gegna mikilvægu hlutverki í mótun samfélaga og geta átt verulegan þátt í betri og sjálfbærari framtíð. Listir og menning falla ekki undir eitt ákveðið heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG) heldur stuðla að þeim öllum, þar á meðal félagslegri aðlögun, útrýmingu fátæktar, ábyrgri umhverfisvernd og hagvexti.
SHIFT Eco-Guidelines er verkefni sem býður upp á þjálfun fyrir menningarleiðtoga víðs vegar um heiminn, samvinnu þeirra í milli og farveg fyrir leiðir til að takast á við alþjóðlegar áskoranir tengdum sjálfbærni. Innleiðingu á breytingum þar sem þörf er á og miðlun milli leiðtoga og starfsfólks í list- og menningargeiranum.
SHIFT umhverfisleiðbeiningarnar eru sérsniðnar fyrir menningarsamtök, með hliðsjón af starfsemi þeirra og umhverfinu sem þau starfa innan. Markmiðið er að ná til allra helstu þátta sem hafa áhrif á umhverfið, s.s. rekstur, stefnu, starfsemi og stjórnarhátta til að gera þau sjálfbærari.