Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist

Verð
3.100 - 11.500 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 3. júní - 19:30
Salur
Eldborg
Í lok tónleikaársins býður Barbara Hannigan, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar upp á heillandi og sumarlega efnisskrá. Tónleikarnir hef jast með fjórum þáttum úr tónlist Mendelssohns við leikritið Draum á Jónsmessunótt, þar á meðal eru hinn fjörlegi forleikur og brúðkaupsmarsinn alþekkti. Dansinn er áberandi í bandarískri tónlist, sem finna má á efnisskránni. Hringekjan snýst og snýst í dillandi valsi úr söngleik Richard Rodgers og Dansasinfónía Aarons Copland hljómar nú í fyrsta sinn á Íslandi, verk sem tónskáldið endurvann upp úr balletti sem aldrei varð. Í lok tónleikanna syngur Barbara Hannigan í nýrri tónsmíð, Á hátíðinni, sem hún hefur skapað ásamt bandaríska kvikmynda- og leikhústónskáldinu Bill Elliot. Tónleikarnir verða endurteknir í styttri útgáfu, án Dansasinfóníunnar, í Hofi á Akureyri.
Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
Barbara Hannigan
Efnisskrá
Felix Mendelssohn Þættir úr Draumi á Jónsmessunótt
Aaron Copland Dance Symphony
Richard Rodgers Carousel Waltz
Bill Elliott At the Fair
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
9.300 kr.
B
7.100 kr.
C
5.100 kr.
D
3.100 kr.
X
11.500 kr.
Dagskrá
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu