Jazz og blús, Tónlist

Verð
4.900 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 1. apríl - 20:00
Salur
Björtuloft
Ari Bragi Kárason, trompet
Eyþór Gunnarsson, píanó
Tveir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, þeir Ari Bragi og Eyþór Gunnars, leiða hér saman hesta sína á þessum tónleikum. Þrátt fyrir að Ari Bragi sé búsettur í Danmörku, þar sem hann starfar með hinu virta danska útvarpsbigbandi (Danish Radio Big Band), hafa þeir Eyþór haldið nánu samstarfi í fjölda ára bæði með tilkomu Ara Braga sem meðlimi hljómsveitarinnar Mezzoforte og einnig með samstarfi þeirra með hljómsveitinni Annes. Á milli þeirra ríkir djúpur tónlistarlegur skilningur og sterkur þráður. Á tónleikunum munu þeir félagar leggja áherslu á efni af nýjustu plötum sínum, Melodies for You og Melodies for Us, sem báðar komu út á síðasta ári við frábærar undirtektir. Gestir geta búist við kvöldi þar sem fallegar laglínur, dýpt og leikgleði ráða för.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir
A
4.900 kr.
Dagskrá
Björtuloft eru glæsileg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina.

Næstu viðburðir í Hörpu