Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Velkomin heim | Sigríður Hjördís Önnu­dóttir, flautu­leikari

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 6. júlí - 16:00

Salur

Hörpuhorn

Sigríður Hjördís Önnudóttir flautuleikari kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 6. júlí klukkan 16. Með henni kemur fram Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanóleikari. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.


Tónleikarnir fara framí Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

--

Sigríður Hjördís Önnudóttir hóf tónlistarnám árið 2002 á Akranesi en þaðan lá leið hennar í Tónlistarskóla Reykjavíkur þar sem hún naut handleiðslu Hallfríðar Ólafsdóttur. Sigríður var einn af sigurvegurum einleikarakeppni Tónlistarskólans í Reykjavík árið 2013 og lék í kjölfarið einleik á tónleikum með Strengjasveit Tónlistarskólans.

Árið 2014-2015 stundaði Sigríður nám við Konunglega listaháskólann í Antwerpen undir handleiðslu Aldo Baertens. Frá 2015 stundaði hún nám við Listaháskóla Íslands en hún var einn einleikara sem spiluðu einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum „Ungir einleikarar“ árið 2015. Hún útskrifaðist frá LHÍ með bakkalárgráðu árið 2017 og stundaði síðar nám hjá Lornu McGhee við Carnegie Mellon University í Pittsburgh en þaðan lauk hún meistaragráðu árið 2024.

Sigríður Hjördís er búsett á Íslandi og starfar sem flautukennari og afleysingamanneskja í Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

sunnudagur 6. júlí - 16:00

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .

eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn